Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Ragga nagli segir illa innrættar sálir skemma regnbogafána

„Þegar krumpaðar táslur fara á stjá með illvirki í huga þá svörum við með að hengja upp fleiri fána.“

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragn­hildur Þórð­ar­dóttir Mynd: Sunna Gautadóttir

Ragnhildur Þórðar­dóttir, betur þekkt sem Ragga nagli, segir í pistli á Facebook mikilvægt að halda áfram að berjast fyrir sýnileika og réttindum hinsegin fólks þrátt fyrir þær miklu réttar­bætur sem náðst hafa á undan­förnum árum. Þetta kemur fram í pistli hennar í tilefni Hinsegin daga.

Ragnhildur rifjar meðal annars upp brúðkaup tveggja samkyn­hneigðra vinkvenna sinna í Fríkirkjunni, skömmu eftir að hjónabönd samkyn­hneigðra voru lögfest hér á landi. Segir hún athöfnina hafa haft djúpstæð áhrif á sig.

„Að fá tækifæri til að samgleðjast þegar tvær manneskjur sem þú elskar njóta sömu sjálf­sagðra réttinda og gagn­kynhneigt fólk,“ skrifar Ragnhildur og segir brúðkaupið jafnframt hafa verið táknrænt fyrir samfélagslegt samþykki.

Hún segir réttinda­baráttu samkyn­hneigðra hafa náð langt á tiltölu­lega skömmum tíma en bendir á að fordómar séu enn til staðar. Nefnir hún meðal annars skemmdar­verk á regnboga­fánum, niðrandi orðræðu í garð samkyn­hneigðra og fordóma gagnvart trans fólki. „Enn þann dag í dag eru unnin skemmdar­verk á regnboga­fána af illa innrættum sálum í húmi nætur,“ skrifar Ragnhildur.

Af þeim sökum telur Ragnhildur enn ríka þörf fyrir Gleði­gönguna. Hún segir gönguna ekki eingöngu snúast um hátíðarhöld heldur einnig sýnileika, fræðslu og að sýna fram á fjöl­breytileika samfélagsins.

„Við erum ekki aðeins að fagna þeim réttindum sem hafa áunnist. Heldur til að auka sýnileika hinsegin fólks,“ skrifar hún.

Ragnhildur segir fjöl­skyldur og sambönd geta verið af ýmsum toga og að samfélagið væri mun fátæklegra ef allir væru eins. Hún hvetur jafnframt til þess að fordómum og skemmdar­verkum verði svarað með enn meiri sýnileika.

„Þegar krumpaðar táslur fara á stjá með illvirki í huga þá svörum við með að hengja upp fleiri fána, málum þá stærri og skrúfum allt í botn í Gleði­göngunni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag