
Dr. Rakel Heiðmarsdóttir hefur verið ráðin deildarforseti Viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst. Samhliða starfinu tekur hún sæti í framkvæmdastjórn háskólans. Greint er frá ráðningunni í tilkynningu frá Bifröst.
Rakel lauk doktorsprófi í ráðgjafarsálfræði frá University of Texas at Austin árið 2002, en hún hlaut Fulbright-styrk til námsins. Á árunum 2001 til 2002 sinnti hún jafnframt tólf mánaða rannsóknarverknámi við University of California, Berkeley.
Hún býr yfir víðtækri reynslu úr atvinnulífinu og hefur meðal annars stýrt mannauðsmálum og setið í framkvæmdastjórnum Norðuráls og Bláa lónsins. Þá starfaði hún hjá Garra, þar sem hún gegndi síðustu árin stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra.
Rakel hefur einnig mikla reynslu af kennslu og komið að háskólakennslu við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og University of Texas. Haustið 2024 var hún fastráðin lektor við Viðskiptadeild Háskólans á Bifröst. Auk þess hefur hún sinnt stjórnunar- og mannauðsráðgjöf fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor Háskólans á Bifröst, fagnar ráðningunni. Rakel tók tímabundið við starfi deildarforseta síðastliðið vor og segir Ólína hana hafa gegnt því með ágætum. Hún kveðst fullviss um að reynsla og þekking Rakelar muni nýtast bæði Viðskiptadeildinni og háskólanum í heild.
