
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkrum umferðarslysum og stöðvaði ökumenn án gildra ökuréttinda í dag. Meðal verkefna var mál þar sem ökumaður er sagður hafa ráðist á starfsmann og ekið utan í hann áður en hann flúði af vettvangi.
Atvikið átti sér stað í Reykjavík. Samkvæmt dagbók lögreglu hafði maður ekið inn á lokaðan veg en starfsmaður á svæðinu stöðvaði för hans. Ökumaðurinn réðst þá á starfsmanninn og þegar hann ók af vettvangi ók hann utan í manninn. Ökumaðurinn fór síðan á brott en lögregla veit hver hann er og er málið til meðferðar.
Í miðborg Reykjavíkur var tilkynnt um umferðarslys þar sem eldur kom upp í bifreið. Tvær bifreiðar skemmdust en engin slys urðu á fólki.
Þá varð árekstur bifreiðar og rafmagnshlaupahjóls í Reykjavík. Þar urðu minniháttar meiðsli og var málið afgreitt á vettvangi. Í Grafarvogi var bifreið ekið aftan á aðra bifreið en engin meiðsli urðu.
Sambærilegt óhapp varð í Hafnarfirði en þar ók ökumaður bifreiðar, sem hafði ekið aftan á aðra bifreið, af vettvangi og hvarf. Engin meiðsli urðu á fólki og er málið í rannsókn.
Lögregla stöðvaði jafnframt ökumann í Reykjavík vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis. Við athugun kom í ljós að hann var einnig án gildra ökuréttinda. Var hann látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.
Fleiri ökumenn voru staðnir að akstri án gildra ökuréttinda. Þá var ökumaður stöðvaður í Garðabæ og reyndist hann hafa verið sviptur ökuréttindum. Málin voru afgreidd á vettvangi.
