
Nokkuð var um verkefni hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt dagbók lögreglu frá því í dag. Meðal annars bárust tilkynningar um heimilisofbeldi, innbrot og eld, auk þess sem nokkrir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum.
Tilkynnt var um eld í fyrirtæki í miðbænum í Reykjavík. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang var engan eld að sjá en töluverður reykur var í húsnæðinu. Reykurinn reyndist stafa af biluðum hárblásara.
Þá barst lögreglu tilkynning um heimilisofbeldi í Reykjavík og önnur sambærileg tilkynning barst úr Hafnarfirði. Einnig var tilkynnt um innbrot og þjófnað úr heimahúsi í Hafnarfirði.
Í miðborg Reykjavíkur var lögreglu gert viðvart vegna einstaklings sem olli ónæði við hús. Í Breiðholti var einstaklingur í mjög slæmu ástandi í heimahúsi og var hann vistaður í fangaklefa vegna ástands síns. Þá fann lögregla sofandi einstakling í stigahúsi í Breiðholti. Hann var vakinn og hélt sína leið.
Nokkrir ökumenn komu við sögu lögreglu. Í Hafnarfirði var ökumaður tekinn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og annar ökumaður var stöðvaður vegna aksturs án ökuréttinda og gruns um fíkniefnaakstur. Í Reykjanesbæ var ökumaður stöðvaður án ökuréttinda.
Annar ökumaður reyndist undir áhrifum áfengis og án ökuréttinda. Þá var ökumaður stöðvaður fyrir hraðakstur í póstnúmeri 108 eftir að hafa mælst á 114 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80.
Loks féll einstaklingur af reiðhjóli og hlaut áverka á læri. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar.
