Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Reykjavíkurborg útvistar skólaþrifum og segir upp starfsfólki

Lægstu launin skorin niður hjá Reykja­víkurborg

Skólaliðum sagt upp og störfum útvistað
Skóla­liðum sagt upp og störfum útvi­stað Mynd: BHJ

Reykja­víkurborg hefur sagt upp hópi skólaliða og útvistað þrifum í skólum til einka­aðila. Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, gagnrýnir aðgerðirnar harðlega og segir þær auka enn á spennu í kjara­málum á viðkvæmum tíma.

Uppsagnirnar eru liður í víðtækum hagræðingar­aðgerðum nýs meirihluta Sjálfstæðis­flokks, Viðreisnar og Framsóknar­flokks, en stefnt er að því að minnka útgjöld borgarinnar um milljarð króna á ári. Meðal áherslu­verkefna meirihlutans er fækkun milli­stjórnenda, aukin skilvirkni og útvistun verkefna.

Lægstu launin færð til einkaaðila

Skóla­liðar sinna mikilvægu starfi við stuðning og gæslu nemenda á skólatíma, auk þess að sjá um ræstingar eftir að kennslu lýkur. Kári Sigurðsson segir ákvörðunina vekja furðu, enda sé verið að ráðast gegn tekju­lægstu hópunum.

Í samtali við RÚV segir Kári að: „þetta séu störf sem eru þau lægst launuðu hjá borginni og eru að fara nú til einka­aðila. Ég get illa séð að þetta sé einhvers konar hagræðing fyrir borgarbúa að útvista svona verkefni.“ Nákvæmur fjöldi þeirra skólaliða sem missa vinnuna liggur ekki fyrir og hafa oddvitar meirihlutans ekki gefið kost á viðtali vegna málsins.

Aðeins einn upplýsingafulltrúi eftir

Þetta eru ekki einu uppsagnirnar hjá borginni í sumar, en fyrr á árinu var um tíu upplýsinga­fulltrúum sagt upp. Í dag starfar aðeins einn upplýsinga­fulltrúi hjá Reykja­víkurborg. Að sögn Sameykis hefur annað starfs­fólk borgarinnar verið beðið um að ganga í störf þeirra, eins og að skrifa á heimasíðu borgarinnar, þrátt fyrir að það sé utan þeirra starfs­lýsingar. Sameyki hefur krafist rökstuðnings fyrir þeim uppsögnum en engin svör fengið.

Óttast frekari aðgerðir fyrir mánaðamót

Reykja­víkurborg er stærsti vinnu­staður landsins með um 11 þúsund starfs­menn, og þar af tilheyra um sex þúsund Sameyki. Formaður félagsins segir starfs­fólk óttast að frekari stórræðis­útspil séu í vændum fyrir næstu mánaðamót.

Aðgerðirnar þykja sérstak­lega umdeildar þar sem útlit er fyrir að verðbólga fari yfir forsendu­ákvæði kjara­samninga á næstunni, sem gæti hleypt mikilli óvissu í vinnu­markaðinn. Kári segir framferði borgarinnar síst til þess fallið að skapa sátt á þessum tíma­punkti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning