Reykvísk kona hefur verið dæmd fyrir að ráðast gegn lögreglumanni en mál hennar var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Hún var fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa, að kvöldi 23. mars 2024 í aftursæti lögreglubifreiðar sem var ekið um Hverfisgötu í Reykjavík, ráðist með ofbeldi á og hrækt í andlit lögreglumanns, sem var við skyldustörf, með þeim afleiðingum að hráki fór m.a. í munn og hægra auga hans.
Hún játaði brot sitt en samkvæmt dómnum á konan nokkurn sakaferil að baki, sem hafði þó ekki þýðingu við úrlausn á þessu máli.
Konan var dæmd í 30 daga fangelsi en dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…

