Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Samtal sem á erindi við allt samfélagið

Vilja breyta geðheil­brigðis­þjónustu: „Hvað ef fyrsta skrefið væri einfald­lega að hlusta?“

Auður Axelsdóttir, framkvæmdastjóri Hugarafls
Auður Axels­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Hug­arafls Ísland hýsir alþjóð­legu Open Dialogue ráð­stefn­una í fyrsta sinn Mynd: Open Dialogue

Dagana 26. til 30. ágúst næst­komandi verður Ísland í fyrsta sinn gestgjafi alþjóð­legu Open Dialogue ráðstefnunnar, sem nú er haldin í 30. sinn.

Ráðstefnan fer fram í Hvera­gerði og mun hreyfa við hefð­bundnum áherslum í geðheil­brigðis­þjónustu með því að beina sjónum að mikilvægi mannlegra tengsla, samvinnu og hlustunar. Búist er við um 100 þátt­takendum frá fjölmörgum löndum.

Hugmynda­fræði Open Dialogue (Opna samtalið) leggur áherslu á að fólk sem glímir við geðrænar áskoranir fái virka rödd í eigin þjónustu. Í stað þess að ákvarðanir séu teknar án samráðs, er fjöl­skyldu og tengsla­neti boðið að borðinu til að skapa sameiginlegan skilning og byggja upp þjónustu sem einkennist af von og virðingu.

Á meðal fram­sögumanna á ráðstefnunni eru virtir innlendir og erlendir sérfræðingar:

  • Jaakko Seikkula, einn af helstu frumkvöðlum Open Dialogue nálgunarinnar.
  • Robert Whitaker, rithöfundur og fyrir­lesari sem haft hefur mikil áhrif á alþjóð­lega umræðu um geðheilbrigðismál.
  • Maria Ingström, læknir sem mun deila eigin reynslu af geðrofi og bata.

Sérstakur opinn dagur fyrir almenning

Skipuleggjendur leggja ríka áherslu á að mála­flokkurinn varði allt samfélagið. Ráðstefnan er því opin jafnt fagfólki, notendum þjónustunnar, aðstand­endum og nemendum.

Föstu­daginn 28. ágúst verður boðið upp á sérstakan opinn dag þar sem almenningi gefst kostur á að taka þátt í umræðunni án þess að sækja ráðstefnuna í heild sinni.

Auður Axels­dóttir, framkvæmda­stjóri Hugarafls, segir tækifærið mikilvægt fyrir íslenskt samfélag: „Við viljum skapa umræðu sem byggir á von. Von um að hægt sé að þróa geðheil­brigðis­þjónustu áfram með meiri hlustun, meiri samvinnu og meiri virðingu fyrir reynslu fólks. Þetta er samtal sem við teljum að allt samfélagið eigi að taka þátt í.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag