
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Scandinavian Airlines System (SAS) til að greiða 400 evrur í bætur vegna flugferðar sem farþegi missti af eftir að brottfarartíma flugs frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur var breytt. Þá þarf flugfélagið að greiða rúmlega 162 þúsund krónur í málskostnað.
Málið var höfðað af HF15 ehf., sem hafði fengið bótakröfu farþegans framselda. Farþeginn átti bókað flug með SAS frá Alicante til Keflavíkur 24. apríl 2025, með millilendingu í Kaupmannahöfn. Flugið frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur átti upphaflega að fara klukkan 15:10 en brottför þess var flýtt um eina klukkustund og tuttugu mínútur. Farþeginn sagðist ekki hafa fengið upplýsingar um breytinguna í tæka tíð og missti því af fluginu.
HF15 krafðist 400 evra í staðlaðar skaðabætur á grundvelli evrópskra reglna um réttindi flugfarþega. SAS mótmælti ekki greiðsluskyldu vegna bótanna sjálfra en ágreiningur málsins snerist einkum um málskostnað og frá hvaða tíma dráttarvextir skyldu reiknast.
Dómurinn taldi ekki sannað að fyrra kröfubréf HF15 hefði sannanlega borist SAS. Fyrir lá hins vegar að félaginu barst krafa í september 2025 og að bótaskylda var síðar viðurkennd. Ekki var talið unnt að slá því föstu að málshöfðunin hefði verið óþörf.
SAS var því dæmt til að greiða HF15 400 evrur ásamt vöxtum og dráttarvöxtum frá 8. desember 2025. Málskostnaður var ákveðinn 162.373 krónur.