Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Segir íslensk fyrirtæki tapa milljónum á því að vera ekki í ESB

Hann segir stöðuna endur­spegla byrðar sem almenningur og fyrirtæki beri vegna krónunnar

Grímar Jónsson
Grímar Jónsson Mynd: Netop Films

Kvikmynda­fram­leiðandinn Grímar Jónsson segir óstöðug­leika íslensku krónunnar og háan fjármagns­kostnað skapa mikla óvissu við fram­leiðslu íslenskra kvikmynda. Hann segist ætla að segja já í ágúst í þjóð­atkvæða­greiðslunni og vonast til að komandi kynslóðir búi við fyrir­sjáanlegri efnahagslegar aðstæður.

Grímar fjallar um málið í aðsendri grein á Vísi. Hann hefur meðal annars framleitt kvik­myndirnar Hrúta, Undir trénu, Héraðið, Northern Comfort og Eldana og sérhæft sig í alþjóðlegri samframleiðslu íslenskra kvikmynda.

Að sögn Gríms hafa verkefni hans kostað á bilinu 200 til 800 milljónir króna og tekur að meðaltali um fimm ár að gera hverja mynd. Hann segir íslenska markaðinn og styrkja­kerfið of lítið til að standa eitt undir fram­leiðslu verkefna af þeirri stærðar­gráðu.

Grímar segir um 60 prósent kostnaðar kvik­myndanna jafnan fjár­mögnuð erlendis, meðal annars með stuðningi evrópskra sjóða, sjónvarps­stöðva, dreifingar- og sölu­fyrirtækja og fjárfesta. Óstöðug­leiki krónunnar geti hins vegar leitt til verulegs gjaldeyris­taps, jafnvel upp á milljónir.

Þá gagnrýnir hann háan fjármagns­kostnað hér á landi. Auðvelt geti verið að fá lán í Evrópu gegn væntanlegum greiðslum í evrum en erlendir lánveitendur vilji ekki lána gegn væntanlegum greiðslum íslenska ríkisins í krónum.

Grímar segir sér þess í stað hafa staðið til boða lán hjá íslenskum viðskipta­banka á 13,5 prósenta vöxtum. Gjaldeyristap og fjármagns­kostnaður vegna einnar kvik­myndar geti því numið tugum milljóna króna.

Hann segir stöðuna endur­spegla byrðar sem almenningur og fyrirtæki beri vegna krónunnar og telur að hægt sé að skapa stöðugra og fyrir­sjáanlegra umhverfi fyrir komandi kynslóðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag