1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

6
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

7
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

8
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

9
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

10
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Til baka

Segir líkindi milli Nei-manna og MAGA

„Eigum við að hafna samstarfi við vini í Evrópu en bukka okkur fyrir valdinu í Washington?“

Össur Skarphéðinsson
Össur SkarphéðinssonEr fyrrverandi utanríkisráðherra.
Mynd: BHJ

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra Íslands, líkir andstæðingum áframhaldandi aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið við MAGA-hreyfingu Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Þetta kemur fram í pistli sem Össur birti á Facebook.

Össur segir samsvörun milli MAGA-hreyfingarinnar og þess sem hann kallar „NEI-hreyfinguna“ á Íslandi verða sífellt meira áberandi eftir því sem líður á kosningabaráttuna.

Hann gagnrýnir jafnframt fjármögnun baráttunnar gegn áframhaldandi viðræðum og heldur því fram að auðmenn og útgerðarmenn leggi henni til verulega fjármuni. Þá beinir hann spjótum sínum að Morgunblaðinu og sakar blaðið um að hafa tekið virkan þátt í málflutningi gegn Evrópusambandinu.

Össur segir jafnframt að forystumenn andstæðinga viðræðnanna reyni að skapa ótta innan embættiskerfisins og draga úr trúverðugleika sérfræðinga, háskólasamfélagsins og ráðuneyta með ásökunum um tengsl við erlend öfl.

Sérstaklega gagnrýnir Össur ummæli um að áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið kunni að hafa áhrif á samskipti Íslands við Bandaríkin. Vísar hann þar meðal annars til ummæla Ingibjargar Davíðsdóttur, þingmanns Miðflokksins, og Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands.

Össur segir það þversagnakennt að þeir sem segist vilja verja Ísland gegn erlendum áhrifum hafi áhyggjur af viðbrögðum stjórnvalda í Washington.

„Eigum við að hafna samstarfi við vini í Evrópu en bukka okkur fyrir valdinu í Washington?“ spyr Össur í pistlinum.

Hann rifjar að lokum upp harðar deilur Íslands og Bandaríkjanna á árum áður og segir afstöðu Ólafs Ragnars nú ólíka þeirri sem fyrrverandi forsetinn hafi sýnt í samskiptum ríkjanna á sínum tíma.

Andstæðingar ósammála utanríkisráðherranum

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus og sjálfstæðismaður, Tómas Þór Þórðarson og Þórir Sæmundsson, fyrrverandi leikari, gagnrýna harðlega ummælin Össurar í athugasemdakerfinu.

Hannes Hólmsteinn svaraði Össuri í athugasemd við færsluna og sagði að þegar rætt væri um fjármagn þyrfti einnig að taka tillit til þeirra fjármuna sem RÚV og utanríkisráðuneytið verðu til málaflokksins. Hann sakaði báðar stofnanir um að reka áróður fyrir já-hliðina.

„Og þegar þú talar um milljónamæringa, gleymdu ekki Jóni Ásgeiri og Helga Magnússyni já-megin,“ skrifaði Hannes. Hann sagðist þó ekki telja tekjur fólks skipta máli heldur þau rök sem það hefði fram að færa.

Tómas Þór Þórðarson, sem einnig er Sjálfstæðismaður, tók í sama streng og benti á fjársterka einstaklinga sem hann sagði styðja já-hliðina.

„Helstu stuðningsmenn Sjásjá eru Lárus Welding og Jón Ásgeir. Talandi um auðmenn,“ skrifaði Tómas.

Þórir Sæmundsson, fyrrverandi leikari, var enn harðorðari í garð Össurar og sagði málflutninginn einkennast af „yfirgengilegum yfirlýsingum og þvælu“.

Hann gagnrýndi jafnframt málflutning margra stuðningsmanna áframhaldandi viðræðna og sagði að í umræðunni væri ítrekað farið í manninn fremur en málefnið. Þá sakaði hann hluta já-hreyfingarinnar um yfirlæti og að tala niður til þeirra sem væru ósammála.

„Mímímímímímímímí allir eru heimskir og vondir nema ég!“ skrifaði Þórir í lok athugasemdar sinnar.

Tómas Þór Þingmaður
Tómas Þór er varaþingmaður
Mynd: Víkingur
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu
Heimur

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

„Það sendir vonarglætu í heim þar sem mennskan er á undanhaldi“
Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina
Pólitík

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Loka auglýsingu