
Uppbygging Landspítala er ein umfangsmesta innviðaframkvæmd sem ráðist hefur verið í hér á landi og er gert ráð fyrir að framkvæmdum tengdum verkefninu ljúki fyrir árið 2031. Þetta kemur fram í tilkynningu stjórnvalda.
Heildarfjárfestingin dreifist yfir tímabilið frá árinu 2010 til 2031 og er hún fullfjármögnuð samkvæmt gildandi fjármálaáætlun Alþingis.
Stjórn Nýs Landspítala ohf. (NLSH) og stýrihópur um skipulag framkvæmda við Landspítala og önnur sérhæfð sjúkrahús hafa kynnt heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra uppfærða heildaráætlun framkvæmda.
Mikil uppbygging hefur þegar átt sér stað við Hringbraut. Allri ytri vinnu við nýjan meðferðarkjarna er lokið og innanhússframkvæmdir hafa staðið yfir á annað ár. Gert er ráð fyrir að byggingaframkvæmdum við meðferðarkjarnann ljúki að mestu í árslok 2029. Í kjölfarið tekur við yfirfærslutímabil áður en starfsemi hefst með nýjum tækjakosti og búnaði.
Hringbrautarverkefnið nær meðal annars til meðferðarkjarna, rannsóknahúss, bílastæða- og tæknihúss og bílakjallara.
Samhliða stendur yfir uppbygging annarra sjúkrahúsbygginga. Framkvæmdum við Grensás á að ljúka í byrjun árs 2027 og nýbyggingu við Sjúkrahúsið á Akureyri árið 2031. Þá á stækkun matsdeildar bráðamóttöku í Fossvogi að vera lokið fyrir haustið 2026.
