1
Fólk

Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir

2
Minning

Arnþór Örlygsson er fallinn frá

3
Fólk

Diljá Mist staðfestir sambandsslitin

4
Heimur

Segir risastórt geimskip hafa þotið fram hjá sólinni á nærri ljóshraða

5
Fólk

„Mér var tilkynnt að ég væri með ristilkrabbamein“

6
Innlent

Aðkomumaður á Akureyri sagður hafa hagnast verulega á fíkniefnum

7
Pólitík

Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi

8
Fólk

Hús með beina tengingu við síðustu aftöku Íslands til sölu

9
Fólk

Íris var sökuð um að vera slæm fyrirmynd á laugardagskvöldi

10
Innlent

Eldi Smára hafnað

Til baka

Sérstakt gjald lagt á fatnað frá Shein, Temu og AliExpress

Nú dregur úr ódýrum netkaupum

Fatahrúa
Lögin sögð mismuna fyrirtækjum
Mynd: Unsplash/Linus Belanger

Stjórnvöld í Frakklandi hafa hert reglur um svokallaða hraðtísku og innleitt sérstakt umhverfisgjald á fatnað sem seldur er á netinu. Lögin, sem tóku gildi í byrjun september, beinast sérstaklega gegn stórum kínverskum netverslunum á borð við Shein, Temu og AliExpress. Markmið ráðstafananna er að sporna gegn ofneyslu og draga úr útbreiðslu á ódýrum fatnaði sem endist stutt og mengar mikið. Frakkland er fyrsta landið innan Evrópusambandsins sem grípur til jafn afgerandi aðgerða gegn viðskiptamódeli hraðtískufyrirtækja, að því fram kemur í frétt Reuters.

Allt að 12 evra gjald á jakka

Aukagjaldið lagðist á vörur strax í þessari viku og ræðst upphæðin af tegund flíkurinnar. Um er að ræða stigvaxandi gjaldskrá:

  • Nærföt: 0,5 evrur á flík.
  • Stuttermabolir: 2 evrur á flík.
  • Gallabuxur: 9 evrur (um 1.265 krónur).
  • Jakkar: 12 evrur (rúmlega 1.680 krónur).

Á næstu fjórum árum mun gjaldið hækka reglulega og stefnt er að því að það verði orðið allt að 20 evrur (um 2.800 krónur) á hverja flík árið 2030. Lögin kveða þó á um það hámark að gjaldið megi aldrei vera hærra en sem nemur helmingi af upprunalegu verði vörunnar fyrir skatta.

4.700 nýjar flíkur á dag

Hraðtíska er í nýju lögunum skilgreind út frá tveimur meginþáttum: magni flíka sem fyrirtæki setja á markað á hverjum degi og því hversu dýrt er að gera við flíkina í samanburði við söluverð hennar.

Umsvif þessara fyrirtækja eru gríðarleg; til dæmis bauð Shein upp á rúmlega tvær milljónir vörutegunda í netverslun sinni í vor og bætir við um 4.700 nýjum fatategundum á markaðinn á hverjum einasta degi. Serge Papin, viðskiptaráðherra Frakklands, gagnrýndi fyrirtækin harðlega í samtali við franska dagblaðið Ouest France. Hann sagði þau gefa sig út fyrir að verja kaupmátt en selja í staðinn varning sem uppfyllir ekki gæðakröfur og endist skammt.

Auk þess sýna rannsóknir að hluti af vörum frá Temu og Shein inniheldur eiturefni langt yfir leyfilegum mörkum í Evrópu. Sú þróun hefur þegar haft áhrif hér á landi, þar sem dæmi eru um að nytjamarkaðir og verslanir með notaðan fatnað neiti að taka við fötum frá þessum risum.

Kínverjar segja lögin mismuna

Nýju reglurnar hafa ekki mælst með einróma lofi. Viðskiptaráðuneyti Kína hefur mótmælt lögunum harðlega og segir þau fela í sér mismunun sem brjóti mögulega gegn meginreglum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO).

Gagnrýnisraddir hafa einnig heyrst innan Evrópu, þar sem evrópsk vörumerki eins og H&M og Zara eru undanþegin gjaldinu að svo stöddu. Telja sumir að lögunum sé ætlað að hlífa evrópskum efnahagslegum hagsmunum fremur en að vernda umhverfið. Franska ríkisstjórnin stendur þó fast á sínu og telur aðgerðirnar nauðsynlegt skref í átt að sjálfbærari framtíð.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Segir Brand hafa dregið sig inn á salerni og neytt sig til munnmaka
Heimur

Segir Brand hafa dregið sig inn á salerni og neytt sig til munnmaka

„Svona nú, ekki vera með leiðindi“
Félag kvartaði undan Vísi og Mbl en fékk ekki hljómgrunn
Innlent

Félag kvartaði undan Vísi og Mbl en fékk ekki hljómgrunn

Kvörtun föður hafnað án þess að málið væri rannsakað nægilega
Innlent

Kvörtun föður hafnað án þess að málið væri rannsakað nægilega

Árni sakar þingmenn um tvískinnung í forvarnarmálum
Innlent

Árni sakar þingmenn um tvískinnung í forvarnarmálum

Segir Bandaríkin og Ísrael endurtaka nýlendustefnu á Gaza
Heimur

Segir Bandaríkin og Ísrael endurtaka nýlendustefnu á Gaza

„Maður verður bara að halda áfram og fara sína eigin leið“
Myndband
Menning

„Maður verður bara að halda áfram og fara sína eigin leið“

Fékk kattarskott inn um bréfalúguna
Heimur

Fékk kattarskott inn um bréfalúguna

Apu snýr aftur í The Simpsons
Heimur

Apu snýr aftur í The Simpsons

Daði segir alla söguna komna fram um brotthvarf Harðar
Pólitík

Daði segir alla söguna komna fram um brotthvarf Harðar

Tölvunarfræðingurinn Edit tók sæti á Alþingi
Pólitík

Tölvunarfræðingurinn Edit tók sæti á Alþingi

Stjórnendur rússneskrar nördasíðu handteknir
Heimur

Stjórnendur rússneskrar nördasíðu handteknir

Íris var sökuð um að vera slæm fyrirmynd á laugardagskvöldi
Fólk

Íris var sökuð um að vera slæm fyrirmynd á laugardagskvöldi

Heimur

Segir Brand hafa dregið sig inn á salerni og neytt sig til munnmaka
Heimur

Segir Brand hafa dregið sig inn á salerni og neytt sig til munnmaka

„Svona nú, ekki vera með leiðindi“
Selena Gomez segir nikótínveip hafa breytt rödd sinni til frambúðar
Heimur

Selena Gomez segir nikótínveip hafa breytt rödd sinni til frambúðar

Segir Bandaríkin og Ísrael endurtaka nýlendustefnu á Gaza
Heimur

Segir Bandaríkin og Ísrael endurtaka nýlendustefnu á Gaza

Fékk kattarskott inn um bréfalúguna
Heimur

Fékk kattarskott inn um bréfalúguna

Apu snýr aftur í The Simpsons
Heimur

Apu snýr aftur í The Simpsons

Stjórnendur rússneskrar nördasíðu handteknir
Heimur

Stjórnendur rússneskrar nördasíðu handteknir

Loka auglýsingu