
Sérsveitin á æfingu
Mynd: Halldor KOLBEINS / AFP
Lögreglan á Norðurlandi eystra handtók tvo menn á Akureyri á föstudag vegna gruns um að þeir hefðu frelsissvipt mann og hótað honum deginum áður. Mennirnir voru handteknir á tveimur stöðum í bænum en RÚV greinir frá málinu.
Skarphéðinn Aðalsteinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar, segir að miðað við aðstæður hafi verið talið rétt að óska eftir aðstoð sérsveitarinnar við aðgerðirnar.
Mönnunum var sleppt að loknum skýrslutökum og húsleit. Að sögn lögreglu var ekki talið að lausaganga þeirra gæti spillt rannsókn málsins eða að almenningi stafaði ógn af þeim.
Málið er enn til rannsóknar og lögregla telur ekki rétt að veita frekari upplýsingar um það að svo stöddu.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
