
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Abdirahman Aden Damey í sex mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Hann var sakfelldur fyrir að hafa flutt 16.450 grömm af maríhúana til Íslands.
Samkvæmt dómi flutti maðurinn fíkniefnin til landsins sem farþegi í flugi frá Frankfurt í Þýskalandi til Keflavíkurflugvallar 30. júlí síðastliðinn. Efnin voru falin í farangurstösku hans sem barst til landsins síðar um kvöldið. Maðurinn tilkynnti töskuna týnda og sótti hana í farangursþjónustu flugvallarins daginn eftir.
Maðurinn játaði brot sitt skýlaust við þingfestingu málsins og samþykkti jafnframt upptökukröfu ákæruvaldsins. Ekki lágu fyrir gögn um að hann hefði áður gerst sekur um refsiverða háttsemi.
Í dóminum kemur fram að ekkert bendi til þess að maðurinn hafi átt fíkniefnin eða tekið þátt í skipulagningu innflutningsins með öðrum hætti en að samþykkja að flytja efnin til Íslands gegn greiðslu. Dómurinn leit til þess, auk játningar hans, við ákvörðun refsingar.
Á móti var litið til þess að um umtalsvert magn fíkniefna væri að ræða og að þáttur mannsins hefði verið ómissandi liður í innflutningnum. Var refsingin ákveðin sex mánaða óskilorðsbundið fangelsi.