
Stjórnarráð Íslands hefur tekið ákvörðun um að beina auglýsingakaupum sínum skipulega til innlendra fjölmiðla í stað erlendra tæknirisa og samfélagsmiðla. Breytingin er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla sem miðar að því að styrkja rekstrargrundvöll ritstýrðra fjölmiðla á Íslandi.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra kynnti nýja verklagið fyrir ríkisstjórninni á síðasta ári og hafa öll ráðuneyti nú tileinkað sér breytingarnar. Þá hefur ráðuneytið sent erindi til undirstofnana sinna þar sem þær eru hvattar til þess að fylgja sama fordæmi. Þótt um tilmæli sé að ræða er lögð áhersla á að auglýsingakaup á öðrum vettvangi en í fjölmiðlum séu ekki í samræmi við stefnu stjórnvalda. Stofnanir sem kjósa að auglýsa annars staðar munu þurfa að sýna fram á skýran rökstuðning.
Áskoranir til opinberra stofnana
Auk breyttra auglýsingakaupa hvetur ráðuneytið opinberar stofnanir til þess að kaupa áskriftir að innlendum fjölmiðlum. Með því megi auka aðgang starfsfólks að vandaðri fréttaflutningi og samfélagsumræðu, auk þess sem það stuðli að sjálfbærum rekstri fjölmiðla í landinu.
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, segir mikilvægt að stofnanir staldri við og velti fyrir sér hvar fjármunum sé ráðstafað.
„Það skiptir máli að það sé ekki sjálfkrafa fyrsta val að kaupa birtingar á samfélagsmiðlum. Auðvitað geta komið upp tilvik þar sem ekki næst með góðu móti til ákveðins markhóps með birtingum í fjölmiðlum en það er sannarlega ekki alltaf,“ segir Logi. Hann hvetur kaupendur auglýsinga til að huga að uppruna þeirra miðla sem verslað er við. „Er fréttin frá ritstýrðum fréttamiðli og unnin af fréttamanni? Eða er fréttin af samfélagsmiðli með óskýran uppruna og án ritstjórnar?“
Víðtækar aðgerðir í bígerð
Stefnubreytingin í auglýsingamálum er aðeins einn liður í umfangsmikilli aðgerðaáætlun stjórnvalda, sem unnin var í samráði við fjölmiðla landsins. Góður gangur er sagður í innleiðingu hennar.
Alþingi samþykkti frumvarp um stuðning við einkarekna fjölmiðla á liðnu vori og nýverið voru birtar reglur í Stjórnartíðindum um tvo nýja sjóði: Talsetningar- og textunarsjóð fjölmiðlaveitna ásamt nýjum nýsköpunar- og þróunarsjóði fjölmiðla. Stefnt er að því að úthluta úr báðum sjóðum fyrir árslok. Þá er gert ráð fyrir að frumvörp um breytingar á lögum um Ríkisútvarpið og hækkun refsiramma höfundalaga verði lögð fram á Alþingi á nýju haustþingi.
Í tilkynningu stjórnvalda segir að markmið aðgerðanna sé að verja sjálfstæða og gagnrýna blaðamennsku, sem veiti stjórnvöldum og atvinnulífi nauðsynlegt aðhald. Sterkir fjölmiðlar séu ein helsta forsenda lýðræðis og varðveislu íslenskrar tungu, og því hvíli rík ábyrgð á herðum ríkisins að styðja við bakið á þeim.
