1
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

2
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

3
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

4
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

5
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

6
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

7
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

8
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

9
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

10
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu

Til baka

Sniðganga HM samþykkt á neyðarfundi UEFA

„Heimsmeistaramótið er ekki til sölu.“

Gianni Infantino
Gianni InfantinoInfantino er afar óvinsæll
Mynd: DAVID SALAZAR / AFP

Knattspyrnusamband Evrópu (UEFA) hefur hótað að sniðganga heimsmeistaramótið í knattspyrnu og allar keppnir á vegum Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA), verði samþykkt umdeild áform forseta FIFA, Giannis Infantino, um að selja einkafjárfestum eignarhluti í stærstu mótum sambandsins.

Ákvörðunin var tekin á neyðarfundi UEFA í dag þar sem fulltrúar allra 55 aðildarsambanda samþykktu samhljóða að hafna tillögunni.

„UEFA og öll 55 aðildarsambönd þess standa saman. Við höfnum einróma og afdráttarlaust tillögu FIFA um að framselja eignarhluti í heimsmeistarakeppninni og öðrum keppnum FIFA til einkafjárfesta,“ segir í yfirlýsingu sambandsins.

UEFA segir heimsmeistarakeppnina vera eina mikilvægustu arfleifð knattspyrnunnar og að hún sé ekki söluvara.

„Heimsmeistaramótið er ekki fjárfestingarvara. Það er ein stærsta íþróttaarfleifð knattspyrnunnar. Mótið hefur verið byggt upp í gegnum kynslóðir af leikmönnum, landsliðum og stuðningsmönnum um allan heim. Engum hluta þess á nokkurn tíma að afhenda einkafjárfestum. Heimsmeistaramótið er ekki til sölu.“

UEFA segir að ef tillögurnar verði ekki dregnar til baka muni ekkert landslið innan sambandsins taka þátt í keppnum á vegum FIFA.

„Engin landslið UEFA munu taka þátt í keppnum FIFA svo lengi sem þessar tillögur eru til umræðu, nema þær verði dregnar alfarið til baka og FIFA veiti bindandi tryggingar fyrir því að sambandsstjórn eða keppnir verði aldrei opnaðar fyrir einkaeign.“

UEFA gagnrýnir einnig hvernig staðið hafi verið að málinu og segir Infantino hafa gefið aðildarsamböndum FIFA aðeins 53 daga til að taka afstöðu. Jafnframt hafi hann lofað 40 milljóna dollara greiðslu til þeirra þjóða sem styðji tillögurnar, en hótað að draga greiðsluna til baka ella.

„Þetta segir allt sem segja þarf um þessa áætlun. FIFA getur ekki haldið áfram að nota íþróttina okkar til að auðga sjálft sig og vini sína,“ sagði UEFA í yfirlýsingu á miðvikudag.

Enska knattspyrnusambandið (FA) lýsti einnig yfir stuðningi við afstöðu UEFA.

„Við stöndum öxl við öxl með evrópskum samstarfsaðilum okkar og styðjum sameiginlega afstöðu þeirra. Við erum andvíg áformum FIFA – heimsmeistaramótið tilheyrir knattspyrnunni og mun ávallt gera það.“

UEFA hefur áður sagt að áform Infantino um að selja hlut í stærstu keppnum FIFA til einkafjárfesta, þar á meðal aðila tengdum fjölskyldu Donalds Trump Bandaríkjaforseta, hafi „farið yfir öll mörk“.

Til að stöðva tillögurnar þarf UEFA þó stuðning frá að minnsta kosti einu öðru álfusambandi, þar sem einfaldur meirihluti aðildarsambanda FIFA – 106 af alls 211 – nægir til að samþykkja þær.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza
Heimur

Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza

„Þetta er eins og risar hafi rifið og tætt allt sem eitt sinn lifði hér“
Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum
Heimur

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi
Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi
Heimur

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum
Fólk

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn
Heimur

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“
Heimur

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja
Innlent

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Drottning poppsins snýr aftur með látum
Myndband
Heimur

Drottning poppsins snýr aftur með látum

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

Sport

Ísraelskur landsliðsmaður rekinn af velli eftir umdeild fagnaðarlæti
Myndband
Sport

Ísraelskur landsliðsmaður rekinn af velli eftir umdeild fagnaðarlæti

„Hann þarf að læra af þessu.“
Mikael varð fyrir kynþáttaníði í Danmörku
Sport

Mikael varð fyrir kynþáttaníði í Danmörku

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar
Sport

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan
Sport

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan

Sögulegur sigur Þróttar á Laugardalsvelli
Myndir
Sport

Sögulegur sigur Þróttar á Laugardalsvelli

Þorgrímur vill tífalda verðlaunaféð
Sport

Þorgrímur vill tífalda verðlaunaféð

Loka auglýsingu