1
Innlent

Mæðgur settar í lífshættu á Langholtsvegi

2
Fólk

Kvartmilljarður fyrir þessa útsýnisperlu

3
Innlent

Sky Lagoon langdýrasta baðlónið

4
Innlent

Segir minnimáttarkennda karla tala niður til Valkyrjanna

5
Fólk

Linda Ben í trylltu stelpufjöri í Köben

6
Innlent

Kærasti grunaður um manndrápstilraun

7
Fólk

Landsliðshetja að verða faðir

8
Heimur

Kona lést eftir átta klukkustunda fegrunaraðgerð

9
Heimur

Sögðust vera með byssu og réðust gegn áhöfninni

10
Innlent

Lögreglan slökkti ljósin í samkvæminu

Til baka

Sólmyrkvi á Íslandi: Við erum klár!

Hópur sjálfboðaliða til taks á Snæfellsnesi og Vestfjörðum

Rauði krossinn - sólmyrkvi
Neyðarvarnateymi Rauða krossins og framkvæmdastjóri félagsins æfa sig að nota sólmyrkvagleraugunRauði krossinn hvetur fólk til að leggja tímanlega af stað
Mynd: Rauði krossinn/Davíð Þór

Neyðarvarnateymi Rauða krossins og hópur sjálfboðaliða verður í viðbragðsstöðu vegna sólmyrkvans 12. ágúst. Flest verða þau til taks á Snæfellsnesi og Vestfjörðum þar sem gert er ráð fyrir að margt ferðafólk komi saman. Íbúar víða á vestanverðu landinu, líklega um 70 prósent landsmanna, munu geta notið almyrkva á sólu frá heimilum sínum og þurfa því ekki að leggjast í ferðalög. Á öðrum svæðum verður deildarmyrkvi.

Rauði krossinn hefur átt gott samstarf við aðra viðbragðsaðila við undirbúninginn síðustu mánuði og nú hafa allir stillt saman strengi. Meðal verkefna Rauða krossins er að hafa til reiðu sérútbúnar kerrur með neyðarvarnabúnaði, s.s. beddum og teppum. Einnig verður stórt tjald til taks á sunnanverðum Vestfjörðum sem hægt er að koma fljótt upp.

En fyrir hvað er Rauði krossinn að undirbúa sig sem gæti orðið til þess að nýta þurfi þennan mannskap og búnað?

„Mottó Rauða krossins er að vera tilbúinn að bregðast við ef hættu- eða neyðarástand skapast og fólk þarf af einhverjum ástæðum á stuðningi okkar að halda,“ segir Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri neyðarvarna hjá Rauða krossinum. Búast má við því að margt fólk verði á ferðinni á vestanverðu landinu, að umferð bæði minni og stærri bíla verði mikil og það á svæðum sem eru mörg hver viðkvæm og úr alfaraleið. Umferð verður stýrt á nokkrum svæðum og í ofanálag gæti veður með einum eða öðrum hætti haft áhrif á ferðalög fólks. Þá verða mörg skemmtiferðaskip úti fyrir vesturströnd landsins og umferð loftfara gæti einnig orðið meiri en venjulega.

„Ef slys verða eða annars konar áföll henda verður Rauði krossinn tilbúinn til aðstoðar og getur komið upp fjöldahjálparstöð í tjaldinu eða hentugu húsnæði gerist þess þörf,“ segir Aðalheiður. Hún hvetur fólk sem hugsar sér til hreyfings að kynna sér skipulagða áhorfsstaði í sinni heimabyggð sem og fyrirhugaðar öryggisráðstafanir, svo sem umferðarstýringu sem beitt verður um lengri eða skemmri tíma á ákveðnum svæðum. Ítarlegar upplýsingar er að finna á vefnum Island.is og á solmyrkvi2026.is

„Við biðlum til þeirra sem ætla að vera á ferðinni að leggja tímanlega af stað og fara að öllu með gát við þessar óvenjulegu aðstæður svo að sem flest geti notið þessa stórkostlega sjónarspils sem almyrkvinn verður,“ segir Aðalheiður. „Fólk á faraldsfæti má búast við því að sitja fast í umferð og ætti að útbúa sig til ferðarinnar með það í huga.“

Aðalheiður ítrekar þau skilaboð sem sett hafa verið fram af yfirvöldum: „Með því að velja hentugan stað á eða við heimili okkar til að fylgjast með almyrkvanum getum við í sameiningu lagt okkar af mörkum við að tryggja almannaöryggi og vernd viðkvæmra svæða.“

Rauði krossinn hvetur alla sem vilja veita öðrum aðstoð og stuðning til að gerast sjálfboðaliðar hjá félaginu. Kynntu þér sjálfboðaliðastörf okkar hér.

FIMM HOLLRÁÐ RAUÐA KROSSINS

Hvort sem þú ætlar að aka stuttan spöl eða leggjast í lengra ferðalag til að njóta almyrkvans þann 12. ágúst skaltu vera undir það búin að ferðin taki lengri tíma en á venjulegum miðvikudegi. Þú verður í félagi við þúsundir úti á vegunum og umferðartafir eru fyrirséðar víða.

Hugaðu að þessum fimm atriðum áður en lagt er af stað:

  1. Útbúðu viðlagakassa í bílinn. Í hann skaltu t.d. setja vatn, nesti, hreinlætisvörur, teppi, hlý föt, aukaskó, hleðslubanka fyrir símann og skyndihjálpartösku.
  2. Fylgstu vel með veðurspá og leiðbeiningum frá yfirvöldum, s.s. um umferðartakmarkanir.
  3. Fylltu á bílinn (eldsneytistankinn eða rafhlöðuna).
  4. Leggðu tímanlega af stað og ekki flýta þér heim.
  5. Mundu eftir sólmyrkvagleraugunum!
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Landsliðshetja að verða faðir
Fólk

Landsliðshetja að verða faðir

Linda Ben í trylltu stelpufjöri í Köben
Myndir
Fólk

Linda Ben í trylltu stelpufjöri í Köben

Fjöldahandtökur í aðgerðum gegn hinsegin fólki í Tyrklandi
Heimur

Fjöldahandtökur í aðgerðum gegn hinsegin fólki í Tyrklandi

Sky Lagoon langdýrasta baðlónið
Innlent

Sky Lagoon langdýrasta baðlónið

Segir minnimáttarkennda karla tala niður til Valkyrjanna
Innlent

Segir minnimáttarkennda karla tala niður til Valkyrjanna

Sögðust vera með byssu og réðust gegn áhöfninni
Heimur

Sögðust vera með byssu og réðust gegn áhöfninni

Kona lést eftir átta klukkustunda fegrunaraðgerð
Heimur

Kona lést eftir átta klukkustunda fegrunaraðgerð

Dráp Rússa magnast þegar veturinn nálgast
Heimur

Dráp Rússa magnast þegar veturinn nálgast

Sextán létust í skelfilegum eldsvoða á hjúkrunarheimili
Heimur

Sextán létust í skelfilegum eldsvoða á hjúkrunarheimili

Kvartmilljarður fyrir þessa útsýnisperlu
Myndir
Fólk

Kvartmilljarður fyrir þessa útsýnisperlu

Lögreglan slökkti ljósin í samkvæminu
Innlent

Lögreglan slökkti ljósin í samkvæminu

Kærasti grunaður um manndrápstilraun
Innlent

Kærasti grunaður um manndrápstilraun

Landið

186 athugasemdir en laxinn syndir samt áfram
Landið

186 athugasemdir en laxinn syndir samt áfram

Leyfin heimila allt að 10.000 tonna eldi
Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum
Landið

Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum

Innanlandsflug tekur breytingum
Landið

Innanlandsflug tekur breytingum

Stórglæsilegar myndir af borgarísjaka við Íslandsstrendur vekja athygli
Myndir
Landið

Stórglæsilegar myndir af borgarísjaka við Íslandsstrendur vekja athygli

Bannað að veiða rjúpu á miðvikudögum
Landið

Bannað að veiða rjúpu á miðvikudögum

Loka auglýsingu