1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

4
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

5
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

6
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

7
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

8
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

9
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

10
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Til baka

Stafrænum kynferðisbrotum fjölgar verulega á Íslandi

Tilkynningar um vændi aukist mikið

No Caller ID - Símaat sími stafrænt öryggi
Kynferðisbrot gegn börnum voru 29 talsins eða 16% fleiri en á sama tímabili árið 2025.
Mynd: Víkingur

Tilkynntum kynferðisbrotum fjölgaði um 9% fyrstu þrjá mánuði ársins 2026 miðað við sama tímabil í fyrra. Mest áberandi er veruleg fjölgun tilkynninga um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot sem jukust um 64% milli ára og mikil aukning tilkynninga um vændi sem nær þrefölduðust. Á sama tímabili fækkaði tilkynntum nauðgunum lítillega milli ára.

Ríkislögreglustjóri hefur birt nýja skýrslu um tilkynnt kynferðisbrot til lögreglu fyrstu 3 mánuði ársins 2026. Á tímabilinu var tilkynnt um 153 kynferðisbrot til lögreglu, samanborið við 140 á sama tímabili árið 2025 sem er 9% aukning milli ára. Ef litið er til lengra tímabils má sjá að brotin voru flest fyrstu þrjá mánuði ársins árin 2019, 2021 og 2022. Kynferðisbrotunum fækkaði eftir það en fjölgaði í ár miðað við síðastliðin 3 ár.

Lögreglan skráir bæði hvenær kynferðisbrotið átti sér stað og hvenær það var tilkynnt til lögreglu, þar sem í hluta mála líður langur tími þar á milli. Tölur fyrir nýleg tímabil geta því enn breyst eftir því sem eldri brot eru tilkynnt. Tilkynntar nauðganir á tímabilinu voru 47, fjórum færri en á sama tímabili í fyrra. Sé hins vegar horft til brota sem áttu sér stað þessa fyrstu þrjá mánuði fjölgaði þeim milli ára, úr 34 í 40.

Tilkynningum um stafræn kynferðisbrot fjölgar verulega

Tilkynningar um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot voru 46 á tímabilinu samanborið við 28 árið áður sem er 64% aukning. Samanborið við meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára nemur aukningin um 45%. Kynferðisbrot gegn börnum voru 29 talsins eða 16% fleiri en á sama tímabili árið 2025.

Tilkynningar um vændi aukist mikið

Tilkynningar um vændi jukust milli ára, úr 11 málum fyrstu þrjá mánuði ársins 2025 í 19 mál á sama tímabili 2026, sem er 73% aukning. Samanborið við meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára þar á undan er um þreföldun að ræða eða 200% aukningu. Sveiflur í þessum flokki geta tengst frumkvæðisvinnu lögreglu og aukinni áherslu stjórnvalda á skipulagða brotastarfsemi fremur en raunbreytingu á tíðni brota.

Konur í miklum meirihluta brotaþola

Konur voru 83% brotaþola í öllum tilkynntum kynferðisbrotum og hlutfallið var enn hærra í nauðgunarmálum eða 95%. Hlutföllin snúast við þegar litið er til grunaðra en karlar voru 90% þeirra sem grunaðir voru um kynferðisbrot á tímabilinu og 98% grunaðra í nauðgunarmálum. Töluverður aldursmunur var milli brotaþola og grunaðra. Meðalaldur brotaþola var 24 ár en meðalaldur grunaðra 34 ára. Tæpur helmingur brotaþola eða 48% var undir 18 ára aldri.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Eva Hauksdóttir tjáir sig um frávísun í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem ákærður var fyrir að valda dauða móður hennar.
Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

Ísraelskir ráðherrar leiddu kröfugöngu um nýjar landnemabyggðir á Gaza
Myndband
Heimur

Ísraelskir ráðherrar leiddu kröfugöngu um nýjar landnemabyggðir á Gaza

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin
Myndband
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

Sprenging skók alríkisbyggingu í New York
Myndband
Heimur

Sprenging skók alríkisbyggingu í New York

Ellefu ára drengur lést í fjallgöngu með föður sínum
Heimur

Ellefu ára drengur lést í fjallgöngu með föður sínum

Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Eva Hauksdóttir tjáir sig um frávísun í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem ákærður var fyrir að valda dauða móður hennar.
Ofurverð á Íslandi fær fólk til að hlæja og gráta
Innlent

Ofurverð á Íslandi fær fólk til að hlæja og gráta

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Markús endaði á bráðamóttöku eftir árás nágrannans
Innlent

Markús endaði á bráðamóttöku eftir árás nágrannans

Vinsæl leikföng tekin af markaði vegna köfnunarhættu
Innlent

Vinsæl leikföng tekin af markaði vegna köfnunarhættu

Loka auglýsingu