
Tveir starfsmenn Símans báru vitni fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag í Reykholtsmálinu svokallaða og lýstu því hvernig sakborningar fengu rafræn skilríki sett upp í síma brotaþola.
Morgunblaðið greinir frá.
Starfsmaður sem afgreiddi hópinn sagði Andra Má Mortensen Birgisson hafa sagt brotaþolann vera stjúpföður sinn og að hann hefði nýlega verið veikur. Samskiptin hefðu nær eingöngu farið fram við Andra á íslensku en brotaþolinn lítið tjáð sig.
Starfsmaðurinn sagði ekkert hafa virst athugavert og hún hefði ekki séð áverka á brotaþolanum. Henni hefði þó þótt eftirtektarvert að hópurinn gekk inn í verslunina „hönd í hönd“.
Annar starfsmaður sagði Andra fyrst hafa komið einn í verslunina en honum verið tjáð að brotaþolinn þyrfti að mæta sjálfur. Andri sneri síðar aftur með brotaþolann og Ingunni Rut Sigurðardóttur. Þau hefðu stutt við manninn þegar þau gengu inn.
Skýrslutökur halda áfram í dag og meðal annars er von á yfirmanni og kunningja brotaþola fyrir dóminn.