1
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

2
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

3
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

4
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

5
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

6
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

7
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

8
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

9
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

10
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

Til baka

Stefán S. varð vitni að drukknun á Tenerife

Saxafónleikarinn lýsir átakanlegum atburði sem átti sér stað á Playa del Bobo í dag, þegar líflaus maður var dreginn upp úr sjónum fyrir framan fjölda strandgesta.

Tenerife
Playa del BoboÞrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst ekki að bjarga manninum
Mynd: Aleksandar Todorovic / Shutterstock

Saxafónleikarinn og skólastjóri Tónskóla Árbæjar, Stefán S. Stefánsson, varð vitni að hræðilegum atburði á Tenerife, þar sem hann er nú í fríi.

Stefán lýsir átakanlegum atburði sem átti sér stað á Playa del Bobo í dag, þegar líflaus maður var dreginn upp úr sjónum fyrir framan fjölda strandgesta.

„Ég eins og svo margir aðrir íslendingar nýt þess í botn að vera á Tenerife. Dagurinn í dag var ekki einn af þeim,“ skrifar Stefán á Facebook rétt í þessu. Hann segir að hann og eiginkona hans, Anna Steinunn Ólafsdóttir, hafi verið í sólbaði í flæðarmálinu þegar hún benti honum á að eitthvað væri að gerast.

Hann lýsir hvernig lífvörður stökk út í sjóinn og dró líflausan mann á land. Strax hófust lífgunartilraunir í flæðarmálinu og fleiri aðilar komu að aðstoðinni, aðrir lífverðir, lögreglumenn og síðar sjúkraflutningamenn.

„Allt kom fyrir ekki, þrátt fyrir hetjulega baráttu lækna, bráðaliða og annarra sem komu að, lést maðurinn,“ segir Stefán og bætir við að örvinglaðir aðstandendur hafi ráfað um á meðan baráttan stóð yfir.

Hann lýsir því sem „súrrealísku ástandi“ þegar líkið lá í hvítum poka á ströndinni í heila þrjá klukkutíma. „Innan um börn með skóflur og bolta, nýir gestir á ströndinni sem horfðu á þetta hvíta fyrirbæri. Ströndin smám saman skiptist, ákveðinn radíus utan um líkið og svo aðrir hlutar strandarinnar.“

Um klukkan fimm mætti loks útfararþjónusta sem flutti líkið í svartan líkpoka og tók það af ströndinni. Á meðan líkið var borið burt sigldi skemmtibátur framhjá og skipstjórinn hrópaði:

„This is Tenerife ya-all! Count your blessings!“

Stefán endar færsluna á að hann muni gera einmitt það.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza
Heimur

Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza

„Þetta er eins og risar hafi rifið og tætt allt sem eitt sinn lifði hér“
Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum
Heimur

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi
Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi
Heimur

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum
Fólk

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn
Heimur

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“
Heimur

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja
Innlent

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Drottning poppsins snýr aftur með látum
Myndband
Heimur

Drottning poppsins snýr aftur með látum

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi
Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi

„Skelfilegast er þó þegar þessar konur eru þvingaðar til þess að verða óléttar“
VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja
Innlent

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi
Innlent

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

Loka auglýsingu