
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt og í gærkvöldi vegna fjölbreyttra verkefna, þar á meðal slagsmála, innbrota, fíkniefnaaksturs og elds í bifreið.
Tilkynnt var um þrjá einstaklinga í slagsmálum á bensínstöð og hélt lögregla þegar á vettvang. Málið er nú til rannsóknar. Þá barst einnig tilkynning um slagsmál milli ungmenna og er það mál sömuleiðis til rannsóknar hjá lögreglu.
Lögreglu var einnig tilkynnt um innbrot og þjófnað í fyrirtæki. Þeir sem grunaðir eru um verknaðinn voru farnir af vettvangi þegar lögreglu bar að garði og er málið í rannsókn. Í öðru tilviki var tilkynnt um innbrot í bílskúr. Þar tókst lögreglu að hafa hendur í hári hins grunaða skammt frá vettvangi. Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar málsins.
Nokkur mál tengdust umferðinni. Þrír ökumenn voru handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra var jafnframt sviptur ökuréttindum. Ökumennirnir voru látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku.
Óvenjulegt mál kom einnig upp í bílakjallara þar sem tilkynnt var um mann í bifreið sem þótti sýna af sér aðfinnsluvert háttalag. Maðurinn, sem var með lambúshettu á höfði, var sagður vera að prófa einhvers konar sírenur. Þegar lögregla kom á vettvang reyndist hann vera í annarlegu ástandi og með bæði gjallarhorn og sírenur á bifreið sinni. Honum var gert að taka búnaðinn niður, sem hann gerði, áður en hann yfirgaf vettvang.
Þá kom lögregla ásamt slökkviliði að bifreið sem var alelda. Slökkvilið náði að ráða niðurlögum eldsins og rannsakar lögregla eldsupptök.
Loks var lögreglu tilkynnt um samkvæmishávaða í heimahúsi og var húsráðandi beðinn um að lækka. Einnig var tilkynnt um hóp fullorðinna einstaklinga sem tók fram ruslatunnur, rótaði í þeim og skildi þær eftir. Lögregla ræddi við fólkið á vettvangi.
