
Flugvél Icelandair
Mynd: Brynhildur Jensdóttir
Flugvirkjar hjá Icelandair hafa samþykkt boðun ótímabundinnar vinnustöðvunar með 88,3 prósentum greiddra atkvæða. Verkfallið hefst að óbreyttu klukkan 00:01 miðvikudaginn 23. september.
Flugvirkjafélag Íslands hefur tilkynnt Icelandair, Samtökum atvinnulífsins og ríkissáttasemjara um niðurstöðu kosningarinnar.
Icelandair segir að náist ekki samkomulag fyrir þann tíma megi búast við röskun á flugrekstri og breytingum á flugáætlun félagsins.
Kjarasamningar flugvirkja runnu út um síðustu áramót og hafa viðræður staðið yfir frá nóvember 2025. Deilunni var vísað til ríkissáttasemjara í febrúar en lítið hefur miðað í samningaviðræðum.
Styður þú verkfall flugvirkja?
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
