1
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

2
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

3
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

4
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

5
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

6
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

7
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

8
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

9
Innlent

Saka hvor annan um yfirgang eftir uppákomu við Löður

10
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Til baka

„Svona fer sagan með menn sem svíkja sín prinsipp, kæri Stefán“

Óhætt að úrslitin sitji misvel í fólki

Stefán Pálsson
Stefán Pálsson sagnfræðingurEr einnig varaborgarfulltrúi.
Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Óhætt er að segja að líflegar umræður hafi skapast á Facebook-síðu Stefáns Pálssonar, varaborgarfulltrúa Vinstrisins, eftir að hann gerði upp þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fram fór á laugardag.

Stefán, sem studdi nei-hliðina, segir að þrátt fyrir niðurstöðu kosninganna hafi gleðin látið á sér standa.

„Svo ég segi það strax, þá hélt ég að ég yrði glaðari þegar sigurinn yrði í höfn. En ég varð ekkert sérstaklega kátur. Í raun upplifði ég ekki annað en hálfgerða tómleikatilfinningu,“ skrifar Stefán.

Hann segist hafa verið feginn niðurstöðunni en jafnframt leiður yfir því að efnt hafi verið til kosninganna, sem hann lýsir sem „ónauðsynlegum óvinafagnaði“. Kosningabaráttan hafi neytt andstæðinga þess að halda saman þrátt fyrir mikinn pólitískan ágreining þeirra á milli.

Stefán gagnrýnir jafnframt ríkisstjórnina og ráðherra hennar harðlega fyrir framgöngu þeirra í aðdraganda kosninganna. Hann segir ráðherra hafa tekið virkan þátt í baráttunni fyrir já-hliðina og sakar þá um að hafa „gaslýst“ fólk með því að gefa í skyn að ólýðræðislegt væri að kjósa á annan veg.

Margir láta Stefán heyra það

Fjölmargir tóku til máls í athugasemdum við færsluna og voru skoðanir skiptar.

Stærðfræðingurinn Einar Steingrímsson sagði niðurstöðuna meðal annars sýna hversu mikil samstaða væri að hans mati milli forystu Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor Háskólans á Bifröst, túlkaði tómleikatilfinningu Stefáns með öðrum hætti.

„Þú ert sem sagt með óbragð í munni og þess vegna orðinn pirraður út í kosninguna sjálfa. Það þýðir að innst inni er þér ljóst að NEI-ið var röng ákvörðun út frá framtíðar hagsmunum þjóðarinnar,“ skrifaði Ólína.

Karen Kjartansdóttir gerði einnig athugasemd við þátttöku Stefáns í kosningabaráttunni og vísaði með kaldhæðnum hætti til samkomu þar sem lagið Öxar við ána var sungið.

Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, var einnig hvöss í garð Stefáns.

„Svona fer sagan með menn sem svíkja sín prinsipp, kæri Stefán. Þessi tómleikatilfinning er sektarkennd,“ skrifaði Snærós.

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, fyrrverandi þingmaður, velti sömuleiðis fyrir sér hvort fleiri kjósendur sem greiddu atkvæði gegn áframhaldandi aðildarviðræðum upplifðu svipaða tilfinningu.

„Mig grunar að mörgum sem sögðu nei sé tómlegt innanbrjósts eftir niðurstöðuna. Það verður áhugavert að sjá könnunina um það hversu mörg sjái eftir atkvæði sínu,“ skrifaði Arndís Anna.

Stefán sagði sjálfur að hann hefði að mestu sloppið við persónulegt skítkast í kosningabaráttunni. Hann sagði hins vegar konur og ungmenni sem hann þekkti hafa orðið fyrir svívirðingum og linnulausu skítkasti, sem hann sagði „óskaplega vesælt“.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Myndband
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Öskraði á gangandi vegfarendur
Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega
Peningar

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari
Fólk

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Myndband
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Öskraði á gangandi vegfarendur
Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Loka auglýsingu