1
Innlent

Björn Ingi dæmdur fyrir hrottalega nauðgun

2
Heimur

Handtekinn fyrir að berja hund

3
Heimur

Trump með óvenjulegt útspil við Kanada

4
Innlent

Reykvíkingur nær ekki í eiginmann sinn og vill skilja

5
Peningar

Átján í Hafnarfirði með digra sjóði og djúpa vasa

6
Peningar

Þrettán á Seltjarnarnesi sem eru loðin um lófanna

7
Pólitík

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn

8
Innlent

Sonur þingmanns grunaður um morð

9
Pólitík

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland

10
Fólk

Svandís komin með nýtt starf

Til baka

Sýknaður um að brjóta kynferðislega á barni eftir ball

Maðurinn neitaði sök frá upphafi

Héraðsdómur Reykjaness
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í málinu
Mynd: Víkingur

Karlmaður hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness af ákæru fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum gegn stúlku sem var tæplega 16 ára þegar meint brot átti sér stað. Atvikið átti að hafa gerst í eftirpartíi í orlofshúsi eftir nýnemaball í ónefndum skóla aðfaranótt 2. september 2023.

Manninum var gefið að sök að hafa áreitt stúlkuna kynferðislega með því að káfa á berum brjóstum hennar og reyna að kyssa hana tungukossi. Hann neitaði sök frá upphafi og kvaðst hafa farið inn í herbergi hússins til að hvíla sig vegna ölvunar og hávaða í partíinu.

Stúlkan var mjög ölvuð umrædda nótt og bar fyrir dómi að hún myndi aðeins brot úr því sem gerðist í herberginu. Hún mundi meðal annars eftir að hafa reynt að komast út um glugga og dyr en að einhver hefði hindrað hana. Hún kvaðst hins vegar ekki muna eftir samskiptum við ákærða.

Nokkur vitni gáfu skýrslu um atburðina. Eitt þeirra sagðist hafa séð manninn kyssa stúlkuna og káfa á brjóstum hennar þegar vitnið leit inn um glugga. Dómurinn taldi framburð þess vitnis hins vegar ekki nægilega áreiðanlegan, meðal annars þar sem önnur vitni sem sáu inn í herbergið báru ekki um sambærilega háttsemi.

Dómurinn taldi heldur ekki sannað að maðurinn hefði losað um leðurtopp stúlkunnar. Var niðurstaðan sú að ákæruvaldinu hefði ekki tekist að sanna sekt mannsins svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa.

Hann var því sýknaður.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Að minnsta kosti 50 manns slösuðust í flugeldaslysi
Myndband
Heimur

Að minnsta kosti 50 manns slösuðust í flugeldaslysi

Yfirvöld telja að neistar frá fyrstu flauginni hafi kveikt í öðrum flugeldum
Hvað ætlar þú að kjósa á laugardaginn?
Könnun
Pólitík

Hvað ætlar þú að kjósa á laugardaginn?

Breyttir tímar á vinnumarkaði með aukinni eftirspurn eftir eldra fólki
Heimur

Breyttir tímar á vinnumarkaði með aukinni eftirspurn eftir eldra fólki

Matvælastofnun varar við chia fræjum með skordýrum
Innlent

Matvælastofnun varar við chia fræjum með skordýrum

Lögreglan varar við svikahröppum
Innlent

Lögreglan varar við svikahröppum

Tengja þyngdarstjórnunarlyf við metfækkun glæpa
Heimur

Tengja þyngdarstjórnunarlyf við metfækkun glæpa

Sálfræðingur segir eineltisrannsókn Kristínar Helgu alvarlega gallaða
Innlent

Sálfræðingur segir eineltisrannsókn Kristínar Helgu alvarlega gallaða

Svandís komin með nýtt starf
Fólk

Svandís komin með nýtt starf

Bjartur dæmdur fyrir að kýla konu í höfuðið
Innlent

Bjartur dæmdur fyrir að kýla konu í höfuðið

Atvinnuleysi tekur stökk milli mánaða
Innlent

Atvinnuleysi tekur stökk milli mánaða

„Batman“ handtekinn á Kanarí
Heimur

„Batman“ handtekinn á Kanarí

Annar einstaklingur handtekinn vegna sverðsárásar í Svíþjóð
Heimur

Annar einstaklingur handtekinn vegna sverðsárásar í Svíþjóð

Innlent

Sýknaður um að brjóta kynferðislega á barni eftir ball
Innlent

Sýknaður um að brjóta kynferðislega á barni eftir ball

Maðurinn neitaði sök frá upphafi
Atvinnuleysi tekur stökk milli mánaða
Innlent

Atvinnuleysi tekur stökk milli mánaða

Matvælastofnun varar við chia fræjum með skordýrum
Innlent

Matvælastofnun varar við chia fræjum með skordýrum

Lögreglan varar við svikahröppum
Innlent

Lögreglan varar við svikahröppum

Sálfræðingur segir eineltisrannsókn Kristínar Helgu alvarlega gallaða
Innlent

Sálfræðingur segir eineltisrannsókn Kristínar Helgu alvarlega gallaða

Bjartur dæmdur fyrir að kýla konu í höfuðið
Innlent

Bjartur dæmdur fyrir að kýla konu í höfuðið

Loka auglýsingu