1
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

2
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir Reykholtsmálið

3
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

4
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

5
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

6
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

7
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

8
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri

9
Pólitík

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“

10
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

Til baka

„Það er ykkar Ísland – ekki mitt“

„Fólkið sem aldrei þarf að hafa áhyggjur af því hvort það eigi fyrir því sem það á greiða um mánaðarmótin hefur sigrað“

Signý Sigurðardóttir
Signý Sigurðardóttir„Ég er rosalega sár og reið“
Mynd: Facebook/Signý Sigurðardóttir

Mikil vonbrigði er hjá þeim sem vildu kíkja í pakkann. Signý Sigurðardóttir, viðskiptafræðingur og stjórnmálakona, lýsir yfir þungum áhyggjum og miklum vonbrigðum í opinberri færslu þar sem hún sakar meirihluta þjóðarinnar og áhrifamikla hagsmunaaðila um að fórna framtíðarkjörum almennings.

Signý segir niðurstöðuna fela í sér að tækifærið til að upplifa lægri vexti, minni verðbólgu og aukna erlenda fjárfestingu á Íslandi sé glatað.

Sakar elítuna og bændur um að standa í vegi fyrir breytingum

Í færslu sinni vísar Signý beint til forystufólks á vinnumarkaði og hagsmunahópa í dreifbýli sem hún telur bera ábyrgð á því að halda Íslandi utan dýpra samstarfs við nágrannaríki.

„Meirihluti íslensku þjóðarinnar með Halldór Benjamín Þorbergsson og Sólveigu Önnu Jónsdóttur í broddi fylkingar hefur tryggt það að ég mun ekki fá að sjá breytingar í þessa veru á íslensku samfélagi í mínu lífi,“ skrifar Signý.

Hún gagnrýnir sömuleiðis stöðu íslenskra bænda og telur málflutning þeirra vinna gegn nauðsynlegri samkeppni: „Íslenskir bændur í dreifðum byggðum landsins hafa tekið frá mér tækifærið að eiga möguleika á breytingum á Íslandi sem skipta máli varðandi samkeppni og erlenda fjárfestingu.“

„Sá hópur hefur verið í forystu“

Að mati Signýjar er það fólk sem býr við mikið fjárhagslegt öryggi sem hefur knúið þessa niðurstöðu fram, á kostnað þeirra sem finna harðast fyrir íslenska efnahagskerfinu. „Fólkið sem aldrei þarf að hafa áhyggjur af því hvort það eigi fyrir því sem það á greiða um mánaðarmótin hefur sigrað. Sá hópur hefur verið í forystu fyrir því að þetta er niðurstaðan.“

Signý dregur ekki dul á að ákvörðunin fái mikið á hana persónulega og segist vera bæði sár og reið eftir litla svefnró.

„Ég er búin að sofa í 5 tíma og ég er rosalega sár. Rosalega sár og reið og þið skuluð ekki láta ykkur detta í hug annað. Ég hef þráð breytingar á gjörspilltu íslensku samfélagi allt mitt líf. Þið sem kusuð nei hafið séð til þess að það mun ég ekki sjá í þessu lífi.“

Hún lýkur færslunni á svörtu útliti fyrir framtíðina þar sem hún segir krónuna og fákeppnina hafa unnið leikinn: „Íslensk króna, fákeppni, háir vextir, há verðbólga. Ísland án áhuga erlendra fjárfesta að koma inn. Það er ykkar Ísland – ekki mitt.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

„Einhvern daginn munum við koma til Reykjavíkur og drepa þig, tíkin þín!“
Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

Kærir Netanyahu og segir hann reyna að hylma yfir eigin ábyrgð
Heimur

Kærir Netanyahu og segir hann reyna að hylma yfir eigin ábyrgð

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“
Pólitík

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum
Innlent

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum
Innlent

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

„Einhvern daginn munum við koma til Reykjavíkur og drepa þig, tíkin þín!“
Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum
Innlent

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum
Innlent

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

Loka auglýsingu