Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Það var ekki til neinn peningur“

Framkvæmda­stjóri ELKO opnar sig um erfiða tíma

Óttar Örn Sigurbergsson
Óttar Örn Sig­ur­bergs­son Mynd: Golli

Nú um helgina birti Mannlíf ítarlegt viðtal við Óttar Örn Sigur­bergsson, framkvæmda­stjóra ELKO

Rætt er við hann er um uppvöxt hans, námsár, fjölskyldulíf og langan starfs­feril hjá ELKO, þar sem hann hefur meðal annars byggt upp afþreyingar­deild og vefverslun fyrir­tækisins. Óttar lýsir einnig þróun sinni sem stjórn­anda, frá hörðum og árangurs­drifnum stjórnunar­stíl yfir í meiri áherslu á mannauð, traust og samvinnu. Þá ræðir hann opinskátt um sjálfs­traust, streitu og kvíða, heilsufarslegar áskoranir og mikilvægi þess að leita sér aðstoðar.

Óttar Örn var nítján ára þegar hann kynntist eiginkonu sinni, Kristínu Helgu Björns­dóttur, sem vinnur í dag í lífeyris­þjónustu Arion Banka. Þau eignuðust síðan sitt eldra barn saman þegar hann var tuttugu og tveggja ára. „Ég var að læra undir próf uppi á fæðingar­deild.“

Eigin­konan vann á þessum tíma við afgreiðslu í sjoppunni á BSÍ og vann hún á nætur­vöktum að selja meðal annars sviða­kjamma á meðan Óttar Örn var í náminu og hittust þau sjaldan að hans sögn. „Það er lífs­reynsla að hafa farið í gegnum það að eiga ekki neinn pening og láta loka fyrir rafmagnið af því að það var ekki til neinn peningur og að fara í spari­baukinn til að geta keypt einn potta af mjólk. Við vorum alveg þar. Það er lífs­reynsla sem kennir manni og undirbýr fyrir lífið. Konan mín studdi mig eins og klettur í gegnum námið og hafði tekjur fyrir fjöl­skylduna.“

Þetta var þriggja ára nám og útskrifaðist Óttar Örn með BS-próf í viðskipta­fræði með áherslu á alþjóða­markaðs­fræði. „Það var kannski svolítið rangt val hjá mér. Ég hefði meira átt að vinna með tölur en ég er miklu meira þar í lífinu. Ég ætla ekki að tala markaðs­fræði niður en hún hentaði mér ekki - þetta var pínu froðu­snakk. Þess vegna er ég með mjög góðan markaðs­stjóra í dag með mér,“ segir hann og hlær. „Ég myndi treysta mér í að gegna því starfi en ég held að ég sé alls ekki jafngóður í því og aðrir í kringum mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Guðrún Karls Helgudóttir birti bæn vegna sjóslyssins fyrir austan og þakkaði þeim sem komu að björgunaraðgerðum.
Pólitík

„Við skulum ekki gera lítið úr baráttu íslenskra kvenna“

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“