1
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

2
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

3
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

4
Fólk

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri

5
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

6
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

7
Fólk

Landsliðsmaður Íslands á von á barni

8
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

9
Innlent

Lögregla kölluð til vegna „afbrigðilegrar hegðunar“

10
Heimur

Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni

Til baka

Þorgerður Katrín í greinilegu uppnámi í beinni

„Já, ég hef fengið alvarlegar hótanir“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður ViðreisnarTilfinningarnar tóku völdin í Bítinu
Mynd: BHJ

Lögreglan rannsakar nú alvarlegar hótanir sem beinst hafa gegn Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanni Viðreisnar, í tengslum við umræðuna um þjóðaratkvæðagreiðsluna um Evrópusambandsaðild. Þetta kom fram í tilfinningaþrungnu útvarpsviðtali í Bítinu á Bylgjunni, þar sem tilfinningarnar báru ráðherrann ofurliði.

Tilfinningarnar tóku völdin í beinni

Þorgerður Katrín bar sig lengst af vel í viðtalinu og ræddi pólitísku hliðarnar en þegar líða tók á spjallið og talið barst að þeirri hörðu persónulegu umræðu sem herjað hefur á hana á samfélagsmiðlum síðustu vikur, fór að hægjast á ráðherranum.

Aðspurð hvort hún hefði hreinlega verið hrædd eða fundið fyrir beinum ógnunum vegna baráttu sinnar fyrir Já-fylkingunni, staðfesti hún að veruleikinn hefði breyst til muna undanfarið.

„Ef þú ert að tala um hótanir já ég hef fengið hótanir. [...] Já, alveg alvarlegar. Já, já ég hef fengið þær. Lögreglan bara sér um þetta og er með greiningar og gerir það sem þarf,“ sagði Þorgerður Katrín.

Þegar hún bætti við að hún reyndi að telja sig örugga brotnaði hún niður. Ráðherrann andvarpaði mæðulega og virtist vera undir miklu álagi.

Í kjölfarið ríkti þögn sem sýndi glögglega að hún átti erfitt með að ræða þetta. Heimir Karlsson, annar umsjónarmanna þáttarins, greip inn í og harmaði að svona væri komið fyrir íslensku samfélagi, en sökum þess að Þorgerður treysti sér ekki til að svara frekar var viðtalinu slitið snögglega.

Gríðarlegt álag í aðdraganda kosninga

Málið varpar skugga fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna en undanfarnar vikur hafa persónuleg skot og harðvítug átök einkennt umræðuna. Ráðherrann greindi frá því að hún hefði neyðst til þess að gera miklar breytingar á sínu lífi og daglegum venjum og að lögreglan framkvæmdi nú sérstök öryggismöt á hennar stöðu.

Þrátt fyrir erfiðleikana lagði hún þunga á mikilvægi þess að kjósa um samningaviðræður við ESB til að verja lífskjör venjulegs fólks gegn verðtryggingu, verðbólgu og „refsivöxtum“ krónunnar.

Fordæmt þvert á flokka

Hótanirnar gegn utanríkisráðherra hafa vakið hörð viðbrögð. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem einnig var gestur í þættinum, tók afgerandi afstöðu og lýsti yfir fullum stuðningi við Þorgerði á persónulegum nótum. Heitir hann á alla landsmenn að ræða málin á málefnalegum grundvelli.

„Það er ömurlegt og óafsakanlegt að hafa í hótunum við Þorgerði og alla aðra. Sameinumst um að ræða saman málefnalega,“ sagði Guðlaugur Þór.

Hann minntist þess jafnframt að hafa sjálfur þurft á lögregluvernd að halda á sínum tíma þegar hann gegndi embætti utanríkisráðherra og innleiðing þriðja orkupakkans stóð yfir.

Atburðir morgunsins sýna að pólitíska landslagið er orðið harðara og persónulegra en áður og ljóst er að þjóðin gengur klofin að kosningu á morgun.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Japanir kepptu í svefni
Heimur

Japanir kepptu í svefni

„Þetta var skemmtileg keppni“
Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar
Heimur

Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu
Heimur

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi
Innlent

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi

Salmonella greindist í innfluttu kryddi
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“
Pólitík

„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“

Hlutverkabreytingar innan Viðreisnar
Pólitík

Hlutverkabreytingar innan Viðreisnar

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október
Myndband
Menning

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang
Innlent

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael
Heimur

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

Innlent

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi
Innlent

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi

„Frakkar þurfa ekki innflytjendur til að verða róttækir“
Íslensk karlasamtök kvarta undan ójafnrétti
Innlent

Íslensk karlasamtök kvarta undan ójafnrétti

Salmonella greindist í innfluttu kryddi
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang
Innlent

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang

Brotaþoli kvartaði undan lögreglustjóra en þarf að leita til dómstóla
Innlent

Brotaþoli kvartaði undan lögreglustjóra en þarf að leita til dómstóla

„Kúga börn til að senda nektarmyndir“
Innlent

„Kúga börn til að senda nektarmyndir“

Loka auglýsingu