1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

3
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

4
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

5
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

6
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

7
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

8
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

9
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

10
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

Til baka

Þremur útlendingum sparkað úr landi

Lögreglan
LögreglubíllMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: BHJ

Þrír erlendir ríkisborgarar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir að lögreglan á Norðurlandi vestra stöðvaði bifreið þeirra við hefðbundið umferðareftirlit síðastliðið fimmtudagskvöld. Við leit í bifreiðinni fannst talsvert magn af munum sem grunur leikur á að séu þýfi.

Frá þessu greinir lögreglan á Norðurlandi vestra í tilkynningu.

Bifreiðin var á suðurleið þegar lögregla stöðvaði hana vegna gruns um of hraðan akstur. Þrír erlendir ríkisborgarar voru í bílnum. Ökumaðurinn framvísaði ökuskírteini en ekki reyndist unnt að bera kennsl á hina tvo á vettvangi þar sem þeir kváðust ekki vera með skilríki meðferðis.

Við nánari athugun lögreglu kom í ljós að fólkið hafði ítrekað komið við sögu lögreglu undanfarnar vikur, meðal annars vegna mála er vörðuðu dvalarleyfi og gruns um þjófnaði.

Þremenningarnir voru í kjölfarið handteknir og bifreiðin flutt á lögreglustöðina á Blönduósi. Þar var framkvæmd leit í bílnum og fundust peningar, skartgripir og ýmsir aðrir munir sem lögregla telur að kunni að vera þýfi.

Á lögreglustöðinni var fólkinu jafnframt birt ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun frá Íslandi og sjö ára endurkomubann.

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra fór í kjölfarið fram á gæsluvarðhald yfir fólkinu þar til unnt yrði að flytja það til heimalands síns. Héraðsdómur Norðurlands vestra féllst á kröfuna og úrskurðaði fólkið í allt að þriggja vikna gæsluvarðhald.

Landsréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms þriðjudaginn 18. ágúst, en stytti gæsluvarðhaldstímann úr þremur vikum í tvær.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

„Frábært félag, það þarf bara að hrista aðeins upp í hlutunum.“
Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína
Innlent

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ferðamálastofa fundaði um öryggi Stuðlagils
Stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru
Myndband
Landið

Stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu
Landið

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu

Loka auglýsingu