1
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

2
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

3
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

4
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

5
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

6
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

7
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

8
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

9
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

10
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu

Til baka

„Þú hefur verið kletturinn minn á erfiðum tímum“

Jón Daði lætur gott heita

Jón Daði Böðvarsson
Jón Daði í baráttu á EM árið 2016Varnarmennirnir Samuel Umtiti og Patrice Evra reyna stoppa hann
Mynd: PHILIPPE LOPEZ / AFP

Knattspyrnumaðurinn Jón Daði Böðvarsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, 34 ára að aldri. Hann greindi frá ákvörðun sinni í færslu á Instagram og segir þar komið að leiðarlokum eftir langan feril í atvinnumennsku og með íslenska landsliðinu.

Jón Daði rifti á laugardag samningi sínum við uppeldisfélagið Selfoss, þar sem hann hafði leikið að undanförnu. Hann hóf meistaraflokksferil sinn hjá félaginu og lýkur því ferlinum á sömu slóðum og hann hófst.

„Góðir hlutir taka enda. Ég hef ákveðið að hætta í leiknum sem ég elska,“ segir Jón Daði í færslunni. Hann rifjar þar upp að áhugi hans á knattspyrnu hafi kviknað þegar hann var aðeins sex ára gamall og lýsir þakklæti fyrir að hafa fengið tækifæri til að gera fótboltann að atvinnu sinni.

Jón Daði átti langan feril erlendis og lék meðal annars í Noregi, Þýskalandi og Englandi. Þá var hann um árabil fastamaður í íslenska landsliðinu og tók þátt í tveimur stærstu knattspyrnumótum sem Ísland hefur komist á.

Hann var í íslenska landsliðshópnum sem komst í átta liða úrslit á Evrópumótinu í Frakklandi árið 2016 og lék einnig með Íslandi á heimsmeistaramótinu í Rússlandi tveimur árum síðar. Alls lék Jón Daði 64 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim fjögur mörk.

Í kveðju sinni þakkar Jón Daði þeim fjölmörgu þjálfurum, leikmönnum og starfsmönnum sem hann kynntist á ferlinum. Hann beinir jafnframt þökkum til stuðningsmanna þeirra félaga sem hann lék fyrir og segist alltaf hafa reynt að gefa allt sitt á vellinum.

Sérstakar þakkir fær eiginkona hans fyrir stuðninginn í gegnum árin og þær fórnir sem hún hafi fært vegna knattspyrnuferils hans.

„Þú hefur verið kletturinn minn á erfiðum tímum og minn stærsti stuðningsmaður. Og besta móðir sem börnin okkar hefðu getað óskað sér,“ skrifar Jón Daði.

Hann lýkur færslunni með einföldum orðum: „Takk fyrir allt.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza
Heimur

Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza

„Þetta er eins og risar hafi rifið og tætt allt sem eitt sinn lifði hér“
Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum
Heimur

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi
Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi
Heimur

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum
Fólk

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn
Heimur

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“
Heimur

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja
Innlent

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Drottning poppsins snýr aftur með látum
Myndband
Heimur

Drottning poppsins snýr aftur með látum

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

Sport

Ísraelskur landsliðsmaður rekinn af velli eftir umdeild fagnaðarlæti
Myndband
Sport

Ísraelskur landsliðsmaður rekinn af velli eftir umdeild fagnaðarlæti

„Hann þarf að læra af þessu.“
Mikael varð fyrir kynþáttaníði í Danmörku
Sport

Mikael varð fyrir kynþáttaníði í Danmörku

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar
Sport

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan
Sport

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan

Sögulegur sigur Þróttar á Laugardalsvelli
Myndir
Sport

Sögulegur sigur Þróttar á Laugardalsvelli

Þorgrímur vill tífalda verðlaunaféð
Sport

Þorgrímur vill tífalda verðlaunaféð

Loka auglýsingu