1
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

2
Heimur

Höfundur South Park nafngreinir hópnauðgara við Cornell-háskóla

3
Heimur

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

4
Innlent

Tveir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Vopnafirði

5
Fólk

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup

6
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

7
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

8
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

9
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

10
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

Til baka

Þúsundir með ótilgreinda búsetu í þjóðskrá

Fólk getur almennt ekki haft heimilisfangt sitt dulið

þjóðskrá íslands
Þjóðskrá Íslands nefnir þrjár ástæður88 beiðnum var hafnað á 12 mánaða tímabili
Mynd: Þjóðaskrá Íslands

Alls voru 6049 einstaklingar skráðir með ótilgreinda búsetu í þjóðskrá þann 1. apríl samkvæmt Þjóðskrá Íslands en kom þetta fram í svari við fyrirspurn sem Mannlíf sendi á stofnunina.

„Einstaklingar sem búsettir eru í atvinnuhúsnæði eða húsnæði sem ekki er skráð sem íbúðarhúsnæði eru jafnan skráðir með ótilgreint lögheimili í því sveitarfélagi sem búsetan er,“ segir Þjóðskrá í svari sínu um málið. Þá segir að þegar einstaklingur óskar eftir að vera skráður með ótilgreint lögheimili í tilteknu sveitarfélagi þurfi ávallt að leggja fram fullnægjandi gögn sem staðfesta raunbúsetu í húsnæði sem ekki uppfyllir skilyrði laga til að skrá lögheimili í.

Þrjár aðalástæður

Algengasta ástæða fyrir ótilgreindri skráningu segir Þjóðskrá að sé vegna tilkynningar þriðja aðila um ranga skráningu lögheimilis.

„Slíkar tilkynningar koma yfirleitt frá þinglýstum eiganda fasteignar sem upplýsir Þjóðskrá Íslands um einstaklinga sem hafa ekki fasta búsetu í húsnæði í þeirra eigu, en eru engu að síður með skráð lögheimili þar. Samkvæmt 3. mgr. 12. gr. lögheimilislaga bera þinglýstir eigendur fasteigna skyldu til að upplýsa Þjóðskrá Íslands um einstaklinga sem eru ranglega skráðir með lögheimili í þeirra fasteign. Málsmeðferð í þannig málum hefst ávallt á að upplýsa málsaðila og honum gefið tækifæri til að bregðast við og upplýsa Þjóðskrá um rétt heimilisfang. Ef einstaklingur bregst ekki við erindi Þjóðskrár Íslands verður hann skráður með ótilgreint lögheimili í sama sveitarfélagi og síðasta skráða lögheimili eða erlendis ef búseta er talin vera erlendis.“

Það sé þó ekki eina ástæðan samkvæmt Þjóðskrá. „Einstaklingar sem eru búsettir í húsnæði sem ekki er heimilt að skrá lögheimili í geta óskað eftir að vera skráðir með ótilgreint lögheimili í búsetu sveitarfélagi. Nauðsynlegt er að staðfesting á búsetu sé lögð fram til Þjóðskrár Íslands til að hægt sé að samþykkja slíka beiðni. Algengast er að í slíkum tilvikum sé um búsetu í atvinnuhúsnæði eða frístundabyggð að ræða en einstaklingar án húsnæðis falla einnig undir þennan flokk.“

Einnig bendir Þjóðskrá á nýskráningu erlendra ríkisborgara á þjóðskrá en Þjóðskrá Íslands er ekki heimilt að tefja umsókn um skráningu lögheimilis á Íslandi og úthlutun kennitölu ef öll skilyrði hafa verið uppfyllt. „Umsækjendur í þessum hópi eru þá skráðir með ótilgreint lögheimili ef búseta er ekki í íbúðarhúsnæði eða þeir hafa ekki fundið varanlegt íbúðarhúsnæði þegar umsókn er unninn.“

Lögreglan þarf að staðfesta

Hversu margir hafa sótt um slíka skráningu á undanförnum 12 mánuðum, hversu mörgum hefur verið hafnað og hversu margar beiðnir hafa verið samþykktar á þeim 12 mánuðum?

„Á tímabilinu 1. apríl 2024 til 1. apríl 2025 voru 420 beiðnir um skráningu á ótilgreindu lögheimili samþykktar og 88 beiðnum á sama tímabili var hafnað.“

Þá segir Þjóðskrá að einstaklingar geti óskað eftir því að lögheimili þeirra sé dulið í þjóðskrá en það er eingöngu hægt ef staðfesting frá lögreglustjóra liggur fyrir.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Bylting við flugstöðina
Innlent

Bylting við flugstöðina

Yfirbyggð gönguleið að Strætó
Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé
Heimur

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu
Heimur

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík
Fólk

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ
Heimur

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð
Heimur

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

Söguleg tímamót í Marokkó
Heimur

Söguleg tímamót í Marokkó

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar
Innlent

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar

Innlent

Bylting við flugstöðina
Innlent

Bylting við flugstöðina

Yfirbyggð gönguleið að Strætó
Skellur í september – Verðbólgan í hæstu hæðir í meira en tvö ár
Innlent

Skellur í september – Verðbólgan í hæstu hæðir í meira en tvö ár

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar
Innlent

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar

Loka auglýsingu