1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

3
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

4
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

5
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

6
Fólk

Millie Bobby Brown á Íslandi

7
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

8
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

9
Innlent

Ráðist á leigubílstjóra

10
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

Til baka

Tímamót í fjölmiðlasögu

Sýn hættir framleiðslu sjónvarpsfrétta og Íslandi í dag

frettastofa Sýnar
Ritstjórn fréttastofu SýnarSíðasti sjónvarpsfréttatími í kvöld
Mynd: Sýn

Fjölmiðlafyrirtækið Sýn hefur ákveðið að hætta framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta frá og með 1. september 2026. Síðasti sjónvarpsfréttatíminn á SÝN verður sendur út í kvöld og lýkur þar með 40 ára samfelldri sögu sjónvarpsfrétta hjá félaginu, sem hófst með tilkomu Stöðvar 2 árið 1986. Samhliða þessu verður framleiðslu og útsendingu á þættinum Íslandi í dag hætt og munu uppsagnir ganga yfir það starfsfólk sem sinnt hefur sjónvarpsfréttaframleiðslu.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Herdísi Dröfn Fjeldsted, forstjóra Sýnar, sem send var starfsfólki í morgun. Í tilkynningunni segir að störfum hjá fyrirtækinu verði fækkað, einkum meðal þeirra sem koma að fréttaflutningi í sjónvarpi.

Breyttar neysluvenjur og harðnandi samkeppni

Ákvörðun Sýnar er sögð tekin í ljósi mikilla breytinga á íslenskum fjölmiðlamarkaði á undanförnum árum. Fréttaneysla almennings hefur færst í vaxandi mæli frá línulegu sjónvarpi yfir á stafræna miðla, sem hefur veikt tekjugrunn innlendra fjölmiðla. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands rann meira en helmingur (51%) af öllu auglýsingafé á Íslandi til alþjóðlegra tæknirisa á borð við Google og Meta árið 2024.

Þessi þróun hefur gert samkeppni einkarekinna miðla við Ríkisútvarpið á auglýsingamarkaði að enn meiri áskorun. Í tilkynningunni kemur fram að tillögur stjórnvalda til stuðnings einkareknum fjölmiðlum hafi ekki haft nægjanleg áhrif á rekstur sjónvarpsfréttanna til að breyta þessari niðurstöðu.

Horft til framtíðar á Vísi og Bylgjunni

Sýn ætlar að beina kröftum sínum í auknum mæli að stafrænum miðlum og útvarpi þar sem eftirspurnin er mest. Markmiðið er að styrkja fréttaþjónustuna á vefmiðlinum Vísi og útvarpsstöðinni Bylgjunni, og tryggja um leið grundvöll fyrir sjálfbærum rekstri til framtíðar. Vísir er í dag á meðal vinsælustu vefmiðla landsins og um 170 þúsund manns á aldrinum 12 til 80 ára hlusta á útvarpsstöðvar Sýnar í hverri viku.

Í tilkynningunni segir að fréttastofa Sýnar muni áfram sinna fréttaþjónustu af fagmennsku og þróa miðlunina í takt við breyttar venjur landsmanna. Þá færði forstjóri Sýnar því starfsfólki sem verður fyrir áhrifum af breytingunum innilegar þakkir fyrir ómetanlegt og mikilvægt framlag í þágu félagsins í gegnum árin.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi
Innlent

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

Loka auglýsingu