1
Peningar

17 tekjuhæstu Reykvíkingarnir opinberaðir

2
Innlent

Þorvaldur kvartaði undan stýrivöxtum í 200 þúsund króna bol

3
Innlent

Jakob játar áreitni í garð samstarfskonu

4
Innlent

Nýnasistar ofsóttu tannlæknanema í Reykjavík

5
Fólk

Selja frábært einbýli með einstöku útsýni

6
Innlent

Ferðamaður kom á lögreglustöðina og tilkynnti glæp

7
Heimur

Leyndarmál elstu konu heims

8
Peningar

16 sem finnst gott að búa í Kópavogi og græða pening

9
Heimur

Tugir flóttamanna sigldu upp að spænskri baðströnd

10
Innlent

Starfsmenn sáu ekki áverka á fórnarlambinu

Til baka

Tók við fjórum pottum af sterku kókaíni

Var gripinn glóðvolgur

Héraðsdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í málinu
Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Jonas Asanavicius í 15 mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Hann var sakfelldur fyrir að hafa tekið á móti og haft í vörslum sínum tæplega 1,3 kíló af kókaíni sem ætlað var til söludreifingar hér á landi.

Samkvæmt dómi var Asanavicius handtekinn á pósthúsinu við Síðumúla í Reykjavík 8. júní síðastliðinn. Þar hafði hann tekið á móti samtals 1.289,86 grömmum af kókaíni með 80 til 81 prósents styrkleika.

Fíkniefnin höfðu verið falin í fjórum pottum sem komu til landsins í tveimur póstsendingum í maí. Í annarri sendingunni voru rúm 702 grömm af kókaíni en tæp 587 grömm í hinni.

Asanavicius játaði brot sitt skýlaust bæði við rannsókn málsins og fyrir dómi. Í dóminum kemur fram að ekkert bendi til þess að hann hafi átt fíkniefnin eða tekið þátt í að skipuleggja kaup eða innflutning þeirra. Hann hafi þess í stað samþykkt gegn greiðslu að sækja efnin á pósthúsið og afhenda þau þriðja aðila.

Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að hann hefði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi, játað brotið og verið samvinnuþýður við rannsóknina. Á móti vó að um umtalsvert magn af sterku kókaíni var að ræða.

Dómurinn ákvað refsingu hans 15 mánaða fangelsi.

Kókaínið var gert upptækt ásamt tveimur farsímum. Þá var Asanavicius dæmdur til að greiða rúmar tvær milljónir króna í málsvarnarþóknun, aksturskostnað og annan sakarkostnað.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristín skipuð í glænýtt embætti
Innlent

Kristín skipuð í glænýtt embætti

Sjö sóttu um embættið
Framkvæmdastjóri TBR selur í Kópavogi
Myndir
Fólk

Framkvæmdastjóri TBR selur í Kópavogi

16 sem finnst gott að búa í Kópavogi og græða pening
Peningar

16 sem finnst gott að búa í Kópavogi og græða pening

Tugir flóttamanna sigldu upp að spænskri baðströnd
Heimur

Tugir flóttamanna sigldu upp að spænskri baðströnd

Frá Kópavogi til Síerra Leóne
Menning

Frá Kópavogi til Síerra Leóne

Örn Guðmundsson ráðinn framkvæmdastjóri Háskóla Íslands
Innlent

Örn Guðmundsson ráðinn framkvæmdastjóri Háskóla Íslands

Nýtt Hafnarhús rís við Viðeyjarsund
Innlent

Nýtt Hafnarhús rís við Viðeyjarsund

Starfsmenn sáu ekki áverka á fórnarlambinu
Innlent

Starfsmenn sáu ekki áverka á fórnarlambinu

Jakob játar áreitni í garð samstarfskonu
Innlent

Jakob játar áreitni í garð samstarfskonu

Átta létust þegar flugvél fórst í Bandaríkjunum
Heimur

Átta létust þegar flugvél fórst í Bandaríkjunum

Þrír látnir í kjölfar hermannaveikifaraldurs í Austurríki
Heimur

Þrír látnir í kjölfar hermannaveikifaraldurs í Austurríki

Innlent

Kristín skipuð í glænýtt embætti
Innlent

Kristín skipuð í glænýtt embætti

Sjö sóttu um embættið
Starfsmenn sáu ekki áverka á fórnarlambinu
Innlent

Starfsmenn sáu ekki áverka á fórnarlambinu

Tók við fjórum pottum af sterku kókaíni
Innlent

Tók við fjórum pottum af sterku kókaíni

Örn Guðmundsson ráðinn framkvæmdastjóri Háskóla Íslands
Innlent

Örn Guðmundsson ráðinn framkvæmdastjóri Háskóla Íslands

Nýtt Hafnarhús rís við Viðeyjarsund
Innlent

Nýtt Hafnarhús rís við Viðeyjarsund

Loka auglýsingu