
Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast í tvígang á sambýliskonu sína og barnsmóður á sameiginlegu heimili þeirra.
Fyrri árásin átti sér stað 15. janúar síðastliðinn. Maðurinn sló konuna í andlitið, tók í axlir hennar og ýtti henni niður í gólf.
Síðara atvikið átti sér stað 8. maí og var umfangsmeira. Þá tók maðurinn konuna kverkataki, fyrst með annarri hendi og síðan báðum höndum. Hann hrinti henni þannig að hún féll í gólfið og sparkaði í síðu hennar þar sem hún lá. Þá hélt hann henni niðri með því að setja annan fótinn á maga hennar og hélt báðum höndum hennar föstum.
Maðurinn neitaði upphaflega hluta sakargifta en ákæruvaldið féll frá þeim hluta málsins. Hann játaði síðan skýlaust þá háttsemi sem eftir stóð.
Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að maðurinn hafði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi og að hann gekkst greiðlega við brotum sínum. Á móti var litið til þess að atlaga hans beindist meðal annars að andliti og hálsi sambýliskonu hans og barnsmóður.
Refsing mannsins var ákveðin tveggja mánaða fangelsi en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða 424.080 krónur í sakarkostnað vegna þóknunar verjanda síns.