Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Umboðsmaður hrekur afstöðu heilbrigðisráðuneytisins

Umboðs­maður telur því að lækninum sé heimilt að kæra niður­stöðuna

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Stundin/Kristinn

Umboðs­maður Alþingis telur að læknir geti kært ákvörðun framhalds­menntunar­ráðs lækninga um mat á starfs­tíma hans til sérnáms í heimilis­lækningum til heilbrigðis­ráðuneytisins. Umboðs­maður telur jafnframt að ákvæði reglu­gerðar sem kveður á um að slíkar ákvarðanir séu endanlegar á stjórnsýslu­stigi eigi sér ekki stoð í lögum.

Málið á rætur að rekja til ákvörðunar framhalds­menntunar­ráðs frá maí 2025. Læknirinn hafði óskað eftir að 16 mánaða starf hans á heilsu­gæslustöð yrði metið til námstíma í sérnámi hans. Ráðið féllst á að meta sex mánuði af tíma­bilinu.

Læknirinn kvartaði í kjölfarið til umboðs­manns. Heilbrigðis­ráðuneytið taldi að ákvarðanir framhalds­menntunar­ráðs væru ekki stjórnvalds­ákvarðanir og því ekki kæranlegar til ráðuneytisins.

Umboðs­maður komst að annarri niður­stöðu. Að mati embættisins er framhalds­menntunarráð stjórn­vald og ákvörðun þess í málinu stjórnvalds­ákvörðun, enda hafi hún haft bindandi áhrif á námstíma læknisins og þar með mögulega námslok, launakjör og faglega stöðu hans.

Umboðs­maður telur því að lækninum sé heimilt að kæra niður­stöðuna til heilbrigðis­ráðuneytisins. Jafnframt er mælst til þess að ráðuneytið endur­skoði reglugerðar­ákvæðið sem kveður á um að ákvarðanir ráðsins séu endanlegar á stjórnsýslu­stigi.

Álitið var birta á heimasíðu Umboðs­manns Alþingis þann 15. september.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning