Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ungmenni leitaði á bráðamóttöku

Bráðamóttaka
Bráða­mót­taka Mynd: Víkingur

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hafði í nógu að snúast vegna fjöl­breyttra mála í gærkvöldi og í nótt, þar á meðal hnífa­ógnar, eftir­farar, innbrota og alvarlegs atviks þar sem flugeldi var kastað inn í bifreið.

Í einu málinu var tilkynnt um mann sem hafði ráðist á annan og ógnað honum með hnífi áður en hann ók á brott. Lögregla hafði uppi á manninum en hann sinnti ekki fyrir­mælum um að stöðva bifreið sína og hófst þá eftirför. Lögregla þurfti að aka á bifreið mannsins til að stöðva för hans. Hann veitti síðan lögreglu mótspyrnu og var vistaður í fanga­klefa vegna rann­sóknar málsins.

Þá var lögregla kölluð til eftir að flugeldi hafði verið kastað inn í bifreið þar sem fólk var statt. Samkvæmt upplýsingum lögreglu óku ungmenni að bifreiðinni í annarri bifreið og köstuðu flug­eldinum inn. Flug­eldurinn sprakk og urðu bæði ökumaður og farþegar fyrir tjóni auk þess sem bifreiðin skemmdist. Lögregla leitaði að bifreið ungmennanna án árangurs.

Nokkur innbrot voru jafnframt tilkynnt. Í einu tilvikinu hafði maður farið inn í heimahús meðan íbúar sváfu og stolið verðmætum. Önnur tilkynning um innbrot reyndist hins vegar eiga sér saklausari skýringu. Þar hafði húsráð­andi læst sig úti og farið inn á eigið heimili í gegnum glugga.

Lögregla rannsakar einnig líkams­árás á ungmenni sem leitaði á bráða­móttöku, slagsmál þar sem manni var ógnað með grjóti og eld í bifreið. Bifreiðin var alelda þegar lögregla og slökkvilið komu á vettvang og slökkti slökkvilið eldinn.

Auk þess voru tveir ökumenn hand­teknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra var jafnframt sviptur ökuréttindum. Báðir voru látnir lausir að lokinni blóð­sýnatöku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning