1
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

2
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

3
Heimur

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu

4
Fólk

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum

5
Fólk

Nýtt upphaf eftir skilnað

6
Pólitík

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu

7
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

8
Heimur

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum

9
Heimur

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu

10
Heimur

Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna

Til baka

„Því meira sem við aukum hörkuna því harðari verða gengin“

Halldóra Mogensen segir stríðið gegn fíkniefnum gera vandann verri

Halldóra Mogensen
Halldóra MogensenHalldóra segir Ísland geta lært af öðrum þjóðum
Mynd: Facebook

Halldóra Mogensen, fyrrverandi þingkona Pírata, segir að hörð stefna í fíkniefnamálum geti haft þveröfug áhrif og ýtt undir aukið ofbeldi og hættulegri starfsemi í undirheimum.

Í Facebook-færslu frá í dag vísar hún til reynslu vinar síns, bresks fyrrverandi leynilögreglumanns, Neil Woods, sem starfaði við að síast inn í fíkniefnagengi og hefur síðar gagnrýnt svokallað stríð gegn fíkniefnum. Woods hafi meðal annars skrifað bókina Good Cop Bad War þar sem hann fjallar um reynslu sína og áhrif stefnu stjórnvalda.

„Ég á vin sem vann lengi sem leynilögreglumaður í Bretlandi. Hlutverk hans innan lögreglunnar var að síast inn í hættulegustu fíkniefnagengi Bretlands, vingast við fótgönguliðana áður en hann tókst á við glæpaforingjana. Hann skrifaði bók um reynslu sína og lærdóm sem heitir “Good Cop Bad War”.“

Samkvæmt Halldóru hefur Woods bent á að aðgerðir lögreglu, svo sem rassíur, handtökur og haldlagningar, leiði oft til þess að glæpahópar aðlagi sig og þrói nýjar og ofbeldisfyllri aðferðir. Hún líkir þróuninni við vopnakapphlaup milli yfirvalda og undirheima.

Halldóra segir að reynsla annarra landa, þar á meðal Svíþjóðar, sýni að aukin harka í fíkniefnamálum leiði ekki til minni dreifingar efna né dragi úr eftirspurn. Þá bæti hún ekki öryggi samfélagsins heldur geti hún aukið hættuna.

„Það sem við á Íslandi getum lært af Svíum og öðrum löndum sem hafa haldið áfram leið ofbeldis í fíkniefnamálum er að því meira sem við aukum hörkuna gagnvart glæpagengjum því harðari verða gengin.“

Að hennar mati ýtir slík stefna frekar undir verri aðstæður og dýpkar fíkniefnavanda í samfélaginu.

„Harka löggjafarinnar og lögreglunar hefur engin áhrif á magn efna í umferð, hún hefur engin áhrif á eftirspurn og hún eykur ekki öryggi samfélagsins. Þvert á móti ýtir hún undir mun hættulegri aðstæður og dýpkar vímuefnavandann á Íslandi.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna
Heimur

Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna

Donald Trump segist ekki ætla að skipta sér að framsalsmáli bræðranna
Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu
Pólitík

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð
Heimur

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum
Myndir
Fólk

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum
Myndir
Landið

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio
Pólitík

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu
Myndband
Heimur

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu

Daði og fjölskylda á ferð um landið
Myndband
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi
Landið

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi

Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Auðjöfurinn er styrktaraðili sjóðs sem styður ólöglegar landnemabyggðir
Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda
Innlent

Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela
Innlent

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands
Innlent

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands

Loka auglýsingu