Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Varpa ljósi á leyndan hjartasjúkdóm eftir sviplegt andlát Elmars

Hlaupið til stuðnings fjöl­skyldu Elmars Péturs­sonar

Minningarsjóður Elmars Péturssonar
Minn­ing­ar­sjóður Elmars Pét­urs­sonar Mynd: Minningarsjóður Elmars Péturssonar

Stofnaður hefur verið Minningar­sjóður Elmars Péturs­sonar, en hann lést sviplega þann 14. janúar síðastliðinn eftir skyndilegt hjarta­stopp. Elmar, sem var 18 mánaða, reyndist vera með Long QT syndrome af tegund 1 (LQT1), sem er arfgengur og leyndur hjarta­sjúkdómur. Fjöl­skylda og vinir standa nú fyrir söfnun og vakin verður athygli á málefninu í tengslum við Reykja­víkur Maraþon Íslands­banka þann 22. ágúst næst­komandi.

Elmari er lýst sem einstak­lega lífglöðum dreng, miklu náttúru­barni og miklum gleði­gjafa sem var óendanlega elskaður af fjöl­skyldu sinni og öllum þeim sem honum kynntust. Skyndilegt fráfall hans skildi eftir sig stórt skarð, en með stofnun sjóðsins og sérstöku minningar­hlaupi áformar fjöl­skyldan að halda minningu hans á lofti og breyta sárs­aukanum í liðsinni við aðra.

Hjartsláttartruflanir og skyndidauði

Hjarta­sjúk­dómurinn Long QT1 getur valdið lífs­hættulegum hjartsláttar­truflunum og skyndi­dauða en einstaklingar sem bera þennan genagalla eru með helmings­líkur á að bera hann áfram til afkomenda. Aðstand­endur Elmars leggja ríka áherslu á mikilvægi þess að auka vitund og fræðslu um sjúk­dóminn almennt svo hægt sé að greina hann í tæka tíð og koma í veg fyrir ótímabært andlát.

Almenningi gefst kostur á að sýna samstöðu með því að skrá sig í hlaupið, heita á hlaupara eða styrkja minningar­sjóðinn beint. Allur ágóði rennur til minningar­sjóðsins, sem mun styðja fjöl­skylduna við að varðveita minningu hans ásamt því að efla fræðslu um Long QT- heilkennið.

Þeir sem vilja leggja málefninu lið geta lagt inn á eftir­farandi reikning:

  • Minningar­sjóður Elmars Péturs­sonar
  • Reiknings­númer: 0537-14-013259
  • Kennitala: 530726-0880
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag