Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Vasaþjófar við Hallgrímskirkju sluppu

Hallgrímskirkja
Hall­gríms­kirkja Mynd: Pierre Leclerc - Shutterstock

Tilkynnt var um vasa­þjófnað við Hallgríms­kirkju í Reykjavík en þetta kom fram í dag dagbók lögreglu í gærkvöldi og í nótt. Gerendur fundust ekki og hvetur lögregla fólk til að vera sérstak­lega á varðbergi á fjöl­förnum ferðamanna­stöðum í borginni.

Lögregla biðlar jafnframt til almennings að tilkynna verði vart við grun­samlega háttsemi eða vasa­þjófnaði.

Nokkur útköll bárust vegna slagsmála í miðborg Reykja­víkur. Þá sinnti lögregla einnig hávaða­kvörtun vegna samkvæmis­hávaða.

Töluvert var um afskipti lögreglu af ökumönnum vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Tveir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna og reyndust báðir vera án ökuréttinda. Annar þeirra var jafnframt eftir­lýstur og var hann vistaður í fanga­geymslu í þágu rann­sóknar málsins.

Þá voru þrír aðrir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða vímuefna.

Einn ökumaður, sem hafði verið sviptur ökuréttindum, var stöðvaður við akstur. Samkvæmt upplýsingum lögreglu reyndi hann að framvísa skilríkjum í blekkingar­skyni.

Tvö umferðar­slys urðu þar sem lögregla kom að málum en enginn var talinn slasaður. Þá varð umferðar­slys við Vestur­landsveg í tengslum við fram­úrakstur. Ein bifreið hafnaði þar utan vegar en ekki var talið að slys hefðu orðið á fólki.

Loks var lögregla kölluð til vegna þjófnaðar í matvöru­verslun. Sá sem grunaður var um þjófnaðinn var látinn laus að loknum framburði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag