1
Fólk

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum

2
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

3
Heimur

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð

4
Fólk

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið

5
Fólk

Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu

6
Heimur

Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum

7
Heimur

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu

8
Menning

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum

9
Heimur

Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum

10
Innlent

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna

Til baka

VR hótar uppsögn samninga

Óvissa með kjarasamninga

Halla Gunnarsdóttir formaður VR
Halla gefur lítið fyrir loforð sveitarfélaga:„Svolítið holur hljómur“
Mynd: Facebook/Halla

Útlit er fyrir að kjarasamningum verkalýðsfélaganna verði sagt upp ef Samtök atvinnulífsins (SA) koma ekki til móts við kröfur um leiðréttingar fyrir launafólk. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir stöðuna þunga, viðræður ganga illa og tímann á þrotum.

Forsendur kjarasamninganna brustu í ágúst þegar verðbólga mældist yfir þeim viðmiðum sem sett voru. Verkalýðsfélögin, þar á meðal VR, LÍV og fagfélögin, hafa nú frest til 8. október til að ákveða hvort samningunum verði sagt upp. Þríhliða viðræður standa yfir á milli Alþýðusambands Íslands (ASÍ), SA og ríkisstjórnarinnar til að reyna að afstýra uppsögn, en að sögn Höllu vantar talsvert upp á að lausn sé í sjónmáli.

„Þar eru nú svona einhverjar hugmyndir komnar á blað en það vantar talsvert upp á að mati verkalýðshreyfingarinnar,“ segir Halla í samtali við RÚV. Hún bætir því við að sérstakar viðræður félaganna við SA gangi „ekkert sérstaklega vel“ og að engin viðbrögð hafi borist við þeim leiðréttingartillögum sem þegar hafa verið lagðar fram á þremur fundum.

Gagnrýnir fyrirtæki og sveitarfélög

Verkalýðsfélögin hafa skorað á stærstu fyrirtæki landsins og sveitarfélög að sýna samfélagslega ábyrgð og halda aftur af verð- og gjaldskrárhækkunum. Viðbrögðin hafa hins vegar valdið vonbrigðum. Halla bendir á að flest fyrirtækin segist taka stöðuna alvarlega en ætli sér þó ekki að grípa til neinna sértækra aðgerða.

Hún gefur sömuleiðis lítið fyrir nýlega yfirlýsingu Kópavogsbæjar, þar sem skorað var á opinbera aðila að takmarka hækkanir við 2,5 prósent.

„Sveitarfélög sem hafa farið í fararbroddi um að hækka leikskólagjöld um tugi prósenta og segjast svo ætla að stilla þeim í hóf núna, það er svolítið holur hljómur,“ segir Halla.

Aðeins 18 dagar eru til stefnu og segir Halla ekkert í hendi sem geti komið í veg fyrir uppsögn samninganna ef ekkert breytist á næsta fundi deiluaðila.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Það besta sem ég hef upplifað“
Fólk

„Það besta sem ég hef upplifað“

Glúmur tjáir sig um kostina við að gera ekki neitt heima
Hnífamaður handtekinn á skemmtistað í miðborginni
Innlent

Hnífamaður handtekinn á skemmtistað í miðborginni

Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum
Heimur

Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum

Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu
Myndir
Fólk

Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð
Heimur

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð

Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum
Myndband
Heimur

Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum
Menning

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið
Fólk

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu
Heimur

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu

Elko innkallar ofn vegna brunahættu
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum
Myndir
Fólk

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna
Innlent

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Myndband
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Innlent

Hnífamaður handtekinn á skemmtistað í miðborginni
Innlent

Hnífamaður handtekinn á skemmtistað í miðborginni

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Elko innkallar ofn vegna brunahættu
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna
Innlent

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Myndband
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Loka auglýsingu