Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Yfirvöld halda áfram vöktun á moskítóflugum og mítlum

Almenningur hvattur til að senda inn sýni

Moskítófluga
Moskítófluga Fólk er beðið um að til­kynna grun um smit­ferja Mynd: frank60/shutterstock

Matvæla­stofnun, Náttúru­fræði­stofnun Íslands og Tilraunastöð Háskóla Íslands í meina­fræði að Keldum halda áfram vöktun á svokölluðum smit­ferjum í sumar, meðal annars moskító­flugum, mítlum og lúsmýi. Almenningur er hvattur til að tilkynna grun um moskító­flugur og safna mítlum sem finnast á fólki eða dýrum. Þetta kemur fram í umfjöllun Bænda­blaðsins.

Ástæða aukinnar vöktunar er meðal annars sú að moskító­flugur fundust í fyrsta sinn á Íslandi síðasta haust. Um var að ræða tegundina Culiseta annulata, sem fannst í Kjós og er útbreidd víða í Evrópu.

Samkvæmt Náttúru­fræði­stofnun hefur tegundin aðlagast köldu loftslagi og getur lifað af veturinn með því að leita skjóls í meðal annars útihúsum og kjöllurum. Talið er líklegt að flugan hafi borist til landsins með vöru­flutningum og að hún geti lifað við íslenskar aðstæður.

Hlýnandi loftslag og auknir vöru­flutningar eru taldir skýra fjölgun nýrra skor­dýrategunda sem greinst hafa hér á landi á undan­förnum árum.

Yfirvöld hvetja fólk sem finnur mítil á sér eða dýrum sínum til að senda sýnið til Náttúru­fræði­stofnunar eða Tilrauna­stöðvarinnar að Keldum. Mikilvægt er að upplýsingar fylgi um hvenær og hvar mítillinn fannst, hvort hann hafi verið á manni eða dýri og hvar viðkomandi hafi verið á ferð undan­farna daga.

Þeir sem verða varir við moskító­flugur eru jafnframt hvattir til að tilkynna það til Náttúru­fræði­stofnunar og senda með stað­setningu fundarins og ljósmynd ef mögulegt er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag