Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Magahjáveita Baldvins breyttist í lífshættulega martröð

„Það var alveg hryllilegt“

Baldvin Þorláksson, sjómaður
Baldvin Þor­láks­son, sjó­maður gagn­rýnir und­ir­bún­ing­inn á einka­klíník­inni eftir lífs­hættu­lega blóð­sýk­ingu og sjö end­ur­að­gerðir Mynd: Samsett mynd

Það sem átti að vera einföld og hversdagsleg maga­hjáveitu­aðgerð á einkaklíník í Noregi breyttist í lífs­hættulega martröð fyrir hinn 69 ára gamla Baldvin Þorláksson. Í stað þess að léttast og öðlast betra líf blasti við tíu daga meðvitundar­leysi í öndunarvél, sjö endur­aðgerðir og varanleg líkamleg skerðing. Baldvin og Gunnar Ásgeirsson, stjórn­andi hlað­varpsins Litla malla­kútsins, lýsa skelfilegri atburðarás þar sem nýi maginn og vélindað voru saumuð beint við þann gamla.

Akureyringurinn Baldvin Þorláksson, fyrr­verandi skip­stjóri sem búsettur hefur verið í Noregi í aldar­fjórðung, ákvað eftir ævilanga baráttu við kílóin að fjármagna maga­hjáveitu­aðgerð sjálfur á einka­sjúkrahúsi. Þrjár systur hans höfðu farið í slíka aðgerð með góðum árangri, en sjálfur lýsir hann því að undir­búningurinn hjá einkaklíníkinni hafi verið í algjöru lágmarki.

„Undir­búningurinn hjá þessari „fínu“ einkaklínik var af skornum skammti. Það var hringt í mig daginn áður og ég átti að svara einhverjum spurningum. Þannig var nú allur undir­búningurinn,“ segir Baldvin, en þetta eina stutta símtal átti sér stað á meðan hann stóð úti á bensínstöð.

Vaknaði í sjúkraþyrlu og heyrði lækna tala spænsku

Á skurðar­borðinu fór allt á versta veg. Baldvin rankaði fyrst við sér í sjúkra­þyrlu á leið á háskóla­sjúkrahúsið í Osló, en þá var hann með 3,7 lítra af blóði í kviðar­holinu. Í kjölfarið fylgdi 55 daga samfelld spítala­vist þar sem kviðnum var ekki lokað endanlega fyrr en 19. júní. Martröðinni var þó fjarri því lokið.

Þátta­stjórn­andinn Gunnar Ásgeirsson lýsir fram­haldinu á þessa vegu: „Hinn 21. júní fer Baldvin að sýna merki um alvarlega blóð­sýkingu og sýkingar­lost. Hann er opnaður aftur og í ljós kemur að nýju samskeytin á meltingar­veginum leka. Gall, magasýrur og saur­gerlar hafa lekið út í kviðar­holið. Hann er kominn með lífhimnu­bólgu og alvarlega sýkingu af völdum baktería og sveppa.“

Aðstæður voru svo alvarlegar að læknar neyddust til að rjúfa meltingar­veginn tíma­bundið og skilja eftir blinda enda. Baldvin sjálfur minnist hryllingsins þegar hann rankaði tíma­bundið við sér á skurðar­borðinu: „Ég vaknaði um nóttina þegar verið var að skera mig upp. Ég gat ekki betur heyrt en að læknarnir væru að tala spænsku. Ég var eiginlega hálf­vakandi, það var alveg hryllilegt.“

Maginn og vélindað saumað við þann gamla

Fjórum dögum síðar, þann 25. júní, kom í ljós að nýi maga­pokinn hafði orðið fyrir algjöru drepi vegna súrefnis­skorts í lostinu. Skurð­læknarnir urðu að fjarlægja hann með öllu og grípa til örþrifa­ráðs sem sjaldan er beitt til að bjarga lífi hans.

„Þeir taka vélindað og sauma það beint við gamla magann sem átti að hvíla óvirkur eftir hjáveituna. Þetta þýðir að aðgerðin er bókstaf­lega tekin til baka,“ útskýrir Baldvin. Meltingar­vegurinn var þá stór­skemmdur og er Baldvin ekki lengur með virkan hringvöðva á milli vélinda og maga.

Baldvin stað­festir þetta: „[Þeir] breyttu þessari hjáveitu­aðgerð og settu í sömu stellingu aftur. Þannig að ég fékk enga aðgerð til að byrja með.“

Lífstíðarafleiðingar og engin eftirfylgni

Auk þess að fá óráð og örmagnast lamaðist þindin öðrum megin hjá Baldvini. Læknar tjáðu honum að líkurnar á að þetta gerðist væru aðeins þrjár á móti þúsund og að þeir hefðu aldrei séð svo slæmt tilfelli. Afleiðingarnar eru varanlegar.

„Dómurinn er þessi: Hann verður að hvílast með höfuð og efri hluta líkamans hækkaðan um að lágmarki 30–40 gráður það sem eftir er lífsins,“ segir Gunnar um nýjan veruleika Baldvins.

Þrátt fyrir að eiga rétt á fimm ára eftir­fylgni samkvæmt skilmálum einkaklíníkurinnar segist Baldvin enga aðstoð hafa fengið eftir að hann sneri heim af spítalanum fyrir hálfum mánuði. Hann hafi gert mistök í mataræði vegna skorts á leið­beiningum, borðað vöfflur, pulsu með öllu og sterkan kjúklinga­rétt með þeim afleiðingum að hann varð fárveikur.

„Ég fékk enga eftir­fylgni með mataræði... Næringar­fræðingurinn hefur ekkert hringt. Ég hef ekkert heyrt frá henni í hálfan mánuð,“ segir Baldvin að lokum, sem hvetur til þess að einka­væðing í skurð­lækningum verði aldrei til þess að afsláttur sé gefinn af öryggi og fræðslu sjúklinga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning