Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Björn Leví gagnrýnir Morgunblaðið harðlega

„Ekki einu sinni að reyna að vera hlut­laust“

Andrés Magnússon
Andrés Magn­ús­son Björn Leví gagn­rýnir orð Andrésar Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Björn Leví Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, gagn­rýnir Morg­un­blaðið harð­lega í nýrri Facebook-færslu í kjöl­far ummæla Andrésar Magn­ús­sonar blaða­manns um að eng­inn fjöl­mið­ill geti verið full­kom­lega hlut­laus.

Björn Leví segir umræð­una ekki snú­ast um að ætl­ast til full­kom­ins hlut­leysis, heldur um að fjöl­miðlar leit­ist við að vera mál­efna­legir og heið­ar­legir í umfjöllun sinni.

„Ég held það sé eng­inn að biðja um full­komið hlut­leysi. En að minnsta kosti snefil af sjálfs­virð­ingu gagn­vart mál­efna­legri umræðu,“ skrifar hann.

Hann segir Morg­un­blaðið hafa sýnt „full­komna hlut­drægni“ í umfjöllun um fjöl­mörg mál og telur að blaðið reyni ekki einu sinni að gæta hlut­lægni í ákveðnum mála­flokkum.

„Það er öllum aug­ljóst sem vilja sjá það að Morg­un­blaðið er ekki einu sinni að reyna að vera hlut­laust í ákveðnum mála­flokkum,“ segir Björn Leví.

Hann gengur enn lengra og heldur því fram að í slíkum málum starfi blaðið fremur sem „keyptur dreif­ing­ar­að­ili“ en sjálf­stæður fjöl­mið­ill.

„Í þeim mála­flokkum er blaðið ekki fjöl­mið­ill heldur keyptur dreif­ing­ar­að­ili sem setur ekki “aug­lýs­ing“ sem merk­ingu á við­kom­andi “fréttir“,“ skrifar hann og tekur fram að það sé hans per­sónu­lega mat.

Björn Leví segir jafn­framt að ummæli Andrésar um að eng­inn fjöl­mið­ill geti verið full­kom­lega hlut­laus feli í sér útúr­snún­ing á þeirri gagn­rýni sem Morg­un­blaðið hafi sætt.

„Umræðan snýst ekk­ert um neina full­komnun á þeim vett­vangi. Hún snýst um að reyna að vera hlut­laus. Hún snýst um að við­ur­kenna þegar það tekst ekki. Að gera grein fyrir hags­muna­á­rekstrum. Að gera grein­ar­mun á skoð­unum og gögnum,“ skrifar hann.

Hann tekur fram að gagn­rýni sín bein­ist ekki að almennri frétta­mennsku eða störfum blaða­manna á gólf­inu.

„Ég er að tala um póli­tík­ina. Nafn­lausu pistl­ana. Allt annað en er skrifað af blaða­mönnum á gólf­inu sem eru bara að sinna sínu fagi almennt séð mjög vel,“ segir Björn Leví.

Í lok færsl­unnar bætir hann við að svip­aða gagn­rýni megi vissu­lega færa fram á hendur öðrum fjöl­miðlum, en að hans mati sé Morg­un­blaðið komið lengst frá því að reyna að gæta hlut­leysis í póli­tískri umfjöllun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Abdul El-Sayed segist tilbúinn að láta forsetann fá heiðurinn af opinberu heilbrigðiskerfi, styðji hann að allir Bandaríkjamenn fái aðgang að þjónustu.
Heimur

Robert Patt­in­son næsti James Bond

Pólitík

Segir Hildi Björns­dóttur beita tvö­földum mæli­kvarða á fjár­mál borg­ar­innar

Heimur

Brand óskaði eftir auka­teppi og sér­sjampói í fang­els­inu

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Pólitík

Pólitík

Vill láta lottó ráða hverjir sitja á Alþingi

Björn Leví Gunnarsson vill að kosningakerfið endurspegli betur að þingmenn séu kjörnir sem einstaklingar en ekki fulltrúar flokka.
  • Pólitík

    Ingvar yfir­gefur Viðreisn

  • Pólitík

    „Ísland á ekki að vera þekkt sem sölu­staður vændis“

  • Pólitík

    Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

  • Pólitík

    „Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata