Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Vélsleðamenn björguðu skíðamanni frá drukknun: „Það mátti ekki tæpara standa“

Athugið, myndin tengist fréttinni ekki beint.
Athugið, myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Pexels – Sebastian Voortman

Hinn sextán ára Steinar Steinarsson bjargaði lífi skíða­manns, ásamt tveimur félögum sínum er þeir komu á vélsleðum sínum í Jósefsdal í apríl árið 1995. Skíða­maðurinn hafði fallið niður um vök á lóni sem myndast hafði í dalnum.

Hrein tilviljun réði því að þrír vaskir vélsleða­kappar, þeir Steinar Steinarsson, Höskuldur Þorsteinsson og Þorsteinn Höskuldsson, tóku eftir göngu­skíðamanni sem fallið hafði niður um vök í Jósefsdal en þeir höfðu rétt áður spáð í að fara aðra leið og því krafta­verki næst að skíða­maðurinn lifði raunina af. Samkvæmt Steinari mátti varla á tæpara standa en Þorsteinn náði að fara út á vökina og koma til hans reipi en göngu­skíða­maðurinn var þá orðinn ansi þrekaður.

DV sagði frá málinu á sínum tíma:

Skíða­maður féll niður um ís í Jósefsdal: Mátti ekki tæpara standa

-segir einn þriggja björgunar­manna

„Hann lá á fjórum fótum á skörinni þegar við sáum hann. Hann var örmagna eftir tilraunir sínar við að komast til lands. Það brotnaði jafn­harðan undan honum ísinn og hann var greini­lega við það að gefast upp,“ segir Steinar Steinarsson, 16 ára vélsleða­maður, sem kom ásamt tveimur félögum sínum, Höskuldi Þorsteins­syni og Þorsteini Höskulds­syni, að göngu­skíðamanni sem fallið hafði niður um vök í lóni sem myndast hefur í Jósefsdal. Steinar og félagar hans fóra á þremur vélsleðum á sunnudag frá Bláfjöllum og ákváðu að fara í Jósefsdal. Þegar þangað kom sáu þeir göngu­skíðamann. „Við ókum áfram inn dalinn og stoppuðum og spjölluðum saman. Við vorum að spá í að fara aðra leið til baka en ákváðum svo að fara sömu leið. Þegar við komum til baka sáum við manninn liggjandi á ísskörinni,“ segir Steinar. Þeir félagar óku þegar að vatninu til að bjarga honum en það brotnaði jafnóðum undan honum ísinn. „Maðurinn var um 30 metra frá landi og við reyndum að koma til hans reipi sem við vorum með en það náði ekki. Þá reyndi Þorsteinn félagi minn að fikra sig út á ísinn en hann brast strax undan honum. Við fórum þá hinir tveir til að ná í lengra reipi til fólks sem við vissum af hinum megin í dalnum. Þegar við komum aftur hafði Þorsteini tekist að koma til hans reipinu,“ segir Steinar. Þeim tókst að draga manninn til lands en hann skarst nokkuð á ísnum við það. „Hann var orðinn mjög þrekaður þegar við náðum honum á þurrt og ég er sann­færður um að það mátti ekki tæpara standa. Ef ekki hefði sést til hans er afskaplega lítill möguleiki til þess að hann hefði haft þetta af,“ segir Steinar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni