Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Íslensk samstaða tryggði 300 börnum skólagöngu

Gjör­bylting í afskekktu þorpi

Kolbrún Pálsdóttir verkefnastjóri alþjóðaverkefna og Tótla I. Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla ásamt Leó, Francis og Claudiu, starfsmönnum Barnaheilla - Save the Children í Síerra Leóne.
Kolbrún Páls­dóttir verk­efna­stjóri alþjóða­verk­efna og Tótla I. Sæmunds­dóttir fram­kvæmda­stjóri Barna­heilla ásamt Leó, Francis og Claudiu, starfs­mönnum Barna­heilla - Save the Children í Síerra Leóne. Mynd: Barnaheill – Save the Children á Íslandi

Nýr grunn- og leikskóli hefur verið tekinn í notkun í afskekkta þorpinu Macca í Pujehanhéraði í Síerra Leóne, á vegum Barna­heilla – Save the Children á Íslandi. Um 300 börn sækja nú nám í skólanum, en þau höfðu áður lítil sem engin tök á skóla­göngu. Verkefnið var alfarið fjár­magnað með framlögum íslensks almennings og Heilla­vina samtak­anna.

Bætt hreinlæti og aðgengi að vatni

Ákvörðun um byggingu skólans var tekin eftir vettvangs­ferð samtak­anna á svæðið á síðasta ári, en Pujehan er eitt fátækasta hérað Síerra Leóne. Samhliða skóla­starfinu var borað eftir vatni til að setja upp hreinlætis­aðstöðu og salerni fyrir börnin. Nýr vatns­brunnur við skólann mun jafnframt nýtast öllum íbúum þorpsins og nágrennis.

„Það kom í ljós að börnin í Macca höfðu enga skóla­byggingu og það vantaði almennilegan vatns­brunn og salerni,“ segir Tótla I. Sæmunds­dóttir, sem var viðstödd vígsluna.

„Það var mögnuð stund þegar við hittum fólkið í þorpinu og fórum með börnunum í nýja skólann þeirra. Ég er eiginlega bara orðlaus af stolti.“

Framlag almennings og tónlistarfólks skilaði árangri

Framkvæmdir hófust í upphafi árs og lauk þeim í ágúst. Skólinn var svo vígður við hátíðlega athöfn þann 7. september síðastliðinn.Verkefnið sýnir glögglega samstöðu íslensks samfélags, en fjár­mögnunin tryggðist meðal annars með:

  • Mánaðar­legum framlögum Heilla­vina Barna­heilla.
  • Tvennum styrktar­tónleikum fimm barnakóra (Dalskóla, Ingunnar­skóla, Vogaskóla, Rimaskóla og Linda­skóla) undir stjórn Jónu Halldórs­dóttur í vor.
  • Stór­tónleikum í Salnum í Kópavogi í september þar sem Mugison, Ellen Kristjáns­dóttir, KK, Ragn­heiður Gröndal og Pétur Ben gáfu vinnu sína og rann miðasalan óskert til verk­efnisins.

Starfið útvíkkað eftir framúrskarandi árangur

Barna­heill hafa starfað í héraðinu frá árinu 2021 og nær verkefnið nú til 87 samfélaga. Sjónum er einkum beint að fræðslu, menntun og ofbeldis­forvörnum. Óháð úttekt sýndi fram á fram­úrskarandi árangur samtak­anna við að útrýma ofbeldi á svæðinu síðustu fimm ár, og var starfið því útvíkkað til fleiri þorpa þegar seinni hluti verk­efnisins hófst fyrr á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning