Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Hvaðan kemur skógjöfin?

Íslensk börn hafa lengi vel haft þann sið að stilla skó sínum í glugg­ann að kvöldi þegar jóla­svein­arnir koma til byggða. Hvaðan kemur þessi skemmti­legi siður og hver ætli sagan sé á bak við hann?

Samkvæmt hald­góðum heim­ildum er sið­ur­inn margra alda gam­all og teng­ist sög­unni um heilagan Nikulás. Þessi umræddi maður er tal­inn hafa verið uppi á 3. og 4. öld eftir Krist og hóf að starfa sem prestur aðeins 17 ára gam­all. Margar sögur fara af gjaf­mildi Niku­lásar en hann var af ríku fólki kom­inn og gaf allan sinn auð til fátækra og þá sér­stak­lega barna. Eftir and­lát hans þann 6. des­em­ber ein­hvern tíma á milli áranna 342-350, fóru menn að tengja hin ýmsu krafta­verk við nafn Niku­lásar og var hann í kjöl­farið gerður að vernd­ar­dýrð­lingi barna og sjó­manna. Dýrkun Niku­lásar dreifð­ist víða og var hann afar vin­sæll meðal kaþ­ólikka í Evrópu og í kringum árið 1100 er farið að tengja hann jóla­há­tíð­inni.

Á messu­degi heilags Niku­lásar var hefð fyrir því að færa börnum gjafir en sið­ur­inn er tal­inn vera upp­runinn út frá helgi­sögu sem var á þann veg að Nikulás hafi vakið þrjá unga drengi aftur til lífs sem höfðu verið myrtir. Vegna helgi­sög­unnar og án efa fjölda ann­arra sagna, tóku börn upp á því að hengja sokka upp við glugga eða dyr. Heim­ildir segja að börn hafi útbúið lítil skip en síðar var not­ast við skó eða körfur í þessum til­gangi – ein­hver í bisk­ups­gervi dýr­lings­ins Niku­lásar deildi svo gjöfum til barn­anna. Það voru hinir íslensku sjó­menn sem færðu þjóð­inni þann sið að setja skó­inn í glugg­ann en þeir komust í kynni við hefð­ina á ferðum sínum um Evrópu. Siðurinn tók þó ekki ból­festu hér á landi fyrr en upp úr 1930 og að sjálf­sögðu var það ekki heil­agur Nikulás sem gaf í skó­inn – heldur jóla­svein­arnir okkar þrettán!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni