Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Boðar Icelandair og flugvirkja á fund klukkan 12

Reynt að afstýra verkfalli flug­virkja

Verkfall gæti kostað hundruð milljóna á dag
Verkfall gæti kostað hund­ruð millj­óna á dag Mynd: Aðsend

Ástráður Haraldsson ríkis­sátta­semjari hefur boðað samninga­nefndir Icelandair og Flugvirkja­félags Íslands til fundar klukkan 12 í dag. Markmið fundarins er að gera úrslita­tilraun til að koma í veg fyrir ótíma­bundið verkfall flug­virkja sem á að hefjast aðfara­nótt miðvikudagsins 23. september.

Fundar­boðið kemur í kjölfar þess að ríkis­sátta­semjari átti fundi með deilu­aðilum á miðvikudag og fimmtudag. Að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, liggur mesti ágrein­ingurinn í launa­liðnum.

Lögum samkvæmt hefur ríkis­sátta­semjari þann möguleika í stöðunni að leggja fram miðlunar­tillögu. Verði sú leið valin myndi verkfalls­aðgerðum frestast á meðan atkvæða­greiðsla um tillöguna fer fram.

Óttast verulegt efnahagslegt tjón

Yfir­vofandi verkfall er þegar farið að hafa neikvæð áhrif. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjónustunnar, segir í viðtali við RÚV að boðaðar aðgerðir séu þegar farnar að hafa verulega skaðleg áhrif á ferða­þjónustu­fyrirtæki um land allt. Hann skorar á stjórn­völd að íhuga áhrif verk­fallsins á efnahags­lífið, sérstak­lega í ljósi markmiða um hallalaus fjárlög á næsta ári.

Komi til verkfalls má búast við mikilli röskun á flug­áætlun Icelandair. Samkvæmt mati greiningar­fyrir­tækisins Akurs gæti verk­fallið kostað Icelandair hundruð milljóna króna á hverjum degi vegna tekjutaps og bóta­skyldu gagnvart farþegum.

Allt flug enn á áætlun

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, áréttar að allt flug sé enn á áætlun. Félagið býður þó farþegum sem eiga bókað flug 23. og 24. september að færa ferðir sínar endurgjalds­laust.

Komi til flug­raskana ber Icelandair skylda til að bjóða farþegum annað flug eða endur­greiðslu, auk mögulegra skaðabóta. Bogi tekur fram að flug­félagið muni fylgja gildandi reglum og að hvert einstakt tilvik varðandi bætur verði metið sérstak­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning