Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Kristján um Ítalíu ævintýrið: „Ég þurfti að sleppa því að borða til að eiga fyrir tímunum“

Kristján Jóhannsson, óperu­söngvari, er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggva­sonar. Kristján segir að lífið hafi kennt sér að eitt það allra mikil­vægasta sé umburðar­lyndi, kærleikur og fyrirgefning:

,,Ítalir segja oft að við séum bara gerð úr kjöti og beinum og eiga þá við að við séum öll bara mannleg. Við gerum öll mistök og verðum að fá að eiga möguleika á að bæta okkur þegar við gerum mistök. Það mikil­vægasta er að vera heiðarleg manneskja og að vera heiðar­legur bæði við sjálfan sig og aðra, en við getum misstigið okkur. Guð almáttugur fyrirgaf og Jesú Kristur fyrirgaf og við verðum sjálf að kunna að fyrirgefa. Og fólkið þarna úti þarf að kunna að fyrirgefa mistökin líka, þau eru bara eðlilegur hluti af því að vera mennskur.”

Í þættinum lýsir hann tímanum þegar hann ferðaðist um allan heim og var einn stærsti óperu­söngvari veraldar:

,,Þetta var yndis­legur tími að fá að ferðast um allan heim og koma fram í stærstu óperu­húsum heims. Við vorum ung á þessum tíma ég og Sigurjóna konan mín og hún enn yngri en ég. En við ákváðum strax að við ætluðum að vera í þessu saman og við ferðuðumst saman hönd í hönd og flugum um allan heim og vorum með barnapíu líka. Þetta þótti svolítið skrýtið, af því að langflestir kollegar mínir voru bara einir ,,On the road”, en ég ferðaðist með alla fjöl­skylduna mína. Konan mín spilaði mjög stóran hlut í að láta þetta ganga svona vel og við gerðum mjög fljótt samkomulag um að vera ekki meira en hálfan mánuð í sundur, þrátt fyrir öll ferða­lögin og það hefur gengið upp. Ég er ekkert alltaf sá besti í mannlegum samskiptum, en Sigurjóna var algjör snillingur í að eiga við stjórn­endur í leikhúsum, umboðs­menn og fleiri. Mér þótti frábært að fá að vera laus við það, þannig að hún var í raun umboðs­maðurinn minn allan þennan tíma.”

Kristján lýsir í þættinum tímanum áður en hann fékk stóra tækifærið og segir að það hafi verið mikið hark:

,,Auðvitað byrjaði maður á einhverjum punkti að hugsa til þess að fara út og láta reyna á það að verða atvinnu­söngvari, en ég var kominn með fjöl­skyldu ungur og varð að borga reikninga og fékk enga sérmeðferð. Ég var kominn með rekstur á litlu fyrirtæki, sem gekk vel, en það var mikil vinna og ég vann myrkranna á milli. Ég varð í raun að vinna eins og skepna og fylla alla vasa af peningum og hoppa svo í djúpu laugina og panta mér bara flug út aðra leiðina til Ítalíu. Það var svo enginn dans á rósum þegar ég kom þangað, en ég ætlaði bara að meika það og var alveg harður á að koma ekki heim með skottið á milli lappanna. Það var ekkert plan B, það var bara þetta eða kúlan í hausinn!!,” segir Kristján og heldur áfram:

,,Stundum var ég orðinn helvíti blankur og kennararnir voru dýrir, þannig að það kom stundum fyrir að ég þurfti að sleppa því að borða í 1-2 daga til að eiga fyrir tímunum. Það fór allur peningurinn á tveimur árum og ég var skít­blankur heillengi. Pabbi átti vini í bænda­stétt sem sendu mér annað slagið smá pening og þá var ég glaður að eiga fyrir leigu og mat þann mánuðinn. En þetta var mikið hark alveg þangað til að ég náði fyrsta ,,gigginu”. Eftir það fór allt af stað.”

Kristján er búinn að vera á Ítalíu lengi og elskar land og þjóð:

,,Ítalía er yndisleg og mér finnst ég á einhvern hátt vera hálf­gerður Ítali. Þetta er upp til hópa yndislegt fólk, opið og tilfinninga­ríkt og getur rifist og elskað þig á sama tíma. Stutt í brosið og eldinn. Það er ekkert gaman ef það er ekki smá hiti í hlutunum og líf í fólki. Það er ,,dead boring” að vera alltaf sammála öllum og það verður bara flatneskja,” segir Kristján, sem segist ekki hafa tekið það mikið inn á sig að finna öfund frá Íslandi í gegnum árin:

,,Það er í raun bara hrós að fá öfund og neikvæðni frá ákveðnum hópi fólks og maður verður að læra að horfa á það þannig. Sveita­mennska og baktal verður alltaf til staðar og maður getur ekki breytt því. En allir sem láta eitthvað til sín taka eru á milli tannanna á fólki og það er bara óhjá­kvæmilegur hluti af þessu öllu saman.”

Það gustaði gríðar­lega um Kristján árið 2004, þegar öll þjóðin hafði skoðun á honum í kringum umfjöllun fjölmiðla um styrktar­tónleika fyrir lanveik börn. Kristján fer í þættinum yfir málið allt:

,,Þetta var ótruleg atburðarrás og það var allt tekið úr samhengi og í raun bara beinlínis logið upp á mig í fjöl­miðlum. Ég hef alla tíð verið mjög ötull í að láta gott af mér leiða, ekki síst eftir að ég missti þáverandi konuna mína úr krabba­meini fyrir þrítugt. Þess vegna var þetta sérstak­lega sárt. Það var mikill fjöldi fólks á sviðinu á þessum tónleikum og það fengu allir borgað fyrir vinnuna sína. Og sumir hafa líklega aldrei verið á hærri launum en þarna. Ljósamenn, hljóðfæra­leikarar, hljóðmenn, söngvarar, allir voru á launum. Kaupþing Banki styrkti tónleikana og keypti afraksturinn og setti á plötu. Launin mín komu þess vegna frá Kaupþingi og höfðu ekkert með innkomu tónleik­anna að gera. Bankinn keypti tónleikana og borgaði því vinnu allra. En þetta var sett upp eins og að ég hafi einn fengið borgað og tekið launin mín beint frá málefninu sjálfu, segir Kristján og heldur svo áfram:

,,Ég fékk meira að segja borgað í Evrum frá bankanum, þannig að það að halda því fram að þetta kæmi af ágóða tónleik­anna var algjör­lega galið. Svo var ég plataður í Kast­ljósið. Ég mætti þangað til að kynna plötu og vissi ekki að ég væri að fara að tala um þetta mál. En á sama tíma og ég er að undirbúa mig undir að fara í Kast­ljósið er verið að lesa fréttina um mig hinum megin í húsinu á RÚV. Ég var með plötu í hendinni og hélt að ég væri að fara að tala um tónlistina mína í Kast­ljósinu. Svo var bara komið í bakið á mér með alls konar spurningar í beinni útsendingu án þess að ég hefði hugmynd um að það væri í vændum. En ég náði nú að hrista þetta frekar fljótt af mér. Shakespeare sagði einhvern tíma: ,,Fólk er fífl” og ég hafði það í huga í gegnum þetta ferli. En það er ekkert sem þú getur gert þegar fjöl­miðlarnir fara af stað með þessum hætti og hringekjan fer af stað. Þetta var í raun og veru bara eins og árás og það er erfitt að skilja hvernig argasta bull getur náð svona miklu flugi. Það er ekki fyrr en löngu síðar þegar rykið er sest sem hægt er að tala um þetta af einhverju viti.”

Þáttinn með Kristjáni og alla aðra Podcastþætti Sölva Tryggva­sonar má nálgast inni á: https://solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning