Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Landsréttur staðfesti skilorðsbundinn dóm yfir konu sem áreitti aðra konu: „Ofbeldið tapaði í dag!“

Höfn í Hornafirði
Höfn í Horna­firði Mynd: hornafjordur.is

Í dag staðfesti Lands­réttur tveggja mánaða skilorðs­bundinn dóm yfir konu á sextugsaldri fyrir kynferðsilega áreitni gangvart annarri konu á hótel­herbergi í Reykjavík fyrir þremur árum. Konurnar voru samstarfs­félagar úr sveitar­félaginu Horna­firði en brota­þolinn hrökklaðist frá Höfn í kjölfar málsins.

Leitaði á hana um hánótt

Fram kemur í frétt Rúv um málið að sú dæmda hafi sagt fyrir Lands­rétti að málið hefði fengið mjög á sig og að hún væri útskúfuð úr samfélaginu á Horna­firði.

Mannlíf fjallaði talsvert um málið en það kom upp í apríl 2019.

Sjá meira hér: Hraktist frá Höfn eftir kynferðis­lega áreitni – „Fór þangað um miðja nótt til að sækja dótið sitt“

Í dóminum kemur fram að konan hefði verið ásamt sex öðrum konum, stödd á hóteli í Reykjavík í apríl 2019. Fóru þær saman út að borða í miðborginni en áfengi var haft um hönd. Eftir að þær luku matnum fór hluti hópsins á fleiri veitinga­staði. Snéri hópurinn svo aftur á hótelið um miðnætti en safnaðist saman í einu hótel­herbergjanna. Þar sinnaðist brotaþolanum og gerandinn í málinu sem varð til þess að hópurinn ákvað að nú væri kominn tími til að fara að sofa, hver í sínum vistar­verum.

Gerandinn í málinu fór í fram­haldinu inn í herbergi til brotaþolans þar sem þær ræddu saman og lögðust svo til svefns í tveimur samliggjandi rúmum. Sagðist brota­þolinn hafa vaknað við það seinna um nóttina að konan var að áreita hana kynferðis­lega með káfi og orðum.

Neitaði konan alfarið fyrir dómi að þetta hefði gerst. Sagði hún í viðbótar­skýrslu fyrir Lands­rétti að mál þetta hafi haft afar mikil áhrif á hana og að hún væri nú útskúfuð úr samfélaginu á Horna­firði.

Telur Lands­réttur að konan hefði átt að átta sig á því að háttar­lagi hennar fælist kynferðisleg áreitni. Þá segir í dómnum að ekki sé heldur hægt að líta fram hjá því að ummæli hennar hafi verið sögð í tengslum við ósamþykkta og óvelkomna snertingu af kynferðis­legum toga. Staðfesti Lands­réttur því fyrri dóm um tveggja mánaða skilorðs­bundinn dóm en lækkaði miska­bæturnar úr 450.000 í 350.000 krónur.

Fagnar fullnaðarsigri

Brota­þolinn í málinu, skrifaði Facebook-færslu í dag um niður­stöðu Lands­réttar þar sem hún fagnar það sem hún kallar fullnaðar­sigri. Segir hún að enginn eigi að láta ganga yfir sig og verða misboðið. Hún gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta færsluna í heild sinni:

„Lífið er ekki eftir fyrirfram gefnu handriti og kemur sífellt á óvart. Fyrir 3 árum og 8 mánuðum varð ég fyrir grófri kynferðislegri áreitni af hálfu samstarfs­konu í vinnuferð og kærði ég það. Fyrir rúmu ári var umrædd kona sakfelld í héraðs­dómi fyrir brotið. Í dag féll svo dómur í málinu fyrir Lands­rétti þar sem niður­staða héraðs­dóms var staðfest, og betur til. Þetta er búinn að vera erfiður tími og margir sem komu að málinu, t.a.m. fyrrum vinnu­veitandi minn úti á landi, brugðust að öllu leiti þegar ég þurfti á stuðningi að halda. Þessi dómur er því áfellis­dómur fyrir fleiri en dæmdu. En sem betur fer á ég sterkt bakland og raða í kringum mig fólki sem er betur innréttað og hafa stutt mig og staðið við bakið á mér í gegnum þetta.

Í dag fagna ég fullnaðar­sigri með sumu af þessu góða fólki.Það á enginn að láta yfir sig ganga og verða misboðið. Þó þetta hafi tekið langan tíma þá var það þess virði.Ofbeldið tapaði í dag!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis