Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Anna sér eftir sjúkrabílakláminu: „Erum með töluvert magn af upplýsingum um okkar viðskiptavini“

Anna Karen
Anna Karen Mynd: Instagram-skjáskot

Anna Karen Sigurðar­dóttir, Only Fans stjarnan sem tók upp hið umtalaða klám­myndband í sjúkrabíl í Skógar­hlíðinni svararaði fjöl­miðlum í gærkvöldi á Instagram, fullum fetum.

Anna Karen, sem tók upp klám­myndband með slökkviliðs­manni inni í slökkvibíl í Skógar­hlíðinni bjó til „story“ á Instagram-síðu sinni í gærkvöldi þar sem hún svarar fjölmiðla­umfjöllun um hana og mynd­bandið illræmda. Þar kallar hún umfjöllunina sem birst hefur um hana í fjöl­miðlum, „mannorðs­morð“ og gaf sterklega í skyn að hún myndi leka upplýsingum um viðskipta­vini íslensks kynlífs­verkafólks. Sagði hún marga þeirra í háum stöðum í samfélaginu og jafnvel innan blaða- og fréttamanna­stéttarinnar. Þá gaf hún einnig í skyn að fleiri innan slökkviliðsins myndu „fjúka“ ef sann­leikurinn kæmi í ljós.

Sjá einnig: Anna tók þátt í frægu klám­myndbandi í sjúkra­bifreiðinni í Skógar­hlíð

Hefur upplýsingar um háttsetta menn

Orðrétt sagði hún í myndbandi í „story“ eftir­farandi:

„En já, við skulum endilega hafa nokkra hluti á hreinu. Meðal annars það að við „sex workers“ erum frekar tight samfélag og við erum með töluvert magn af upplýsingum um okkar viðskipta­vini sem eru frekar margir. Og í alls konar stöðum og störfum. Þannig að ef þið viljið og ætlið að halda áfram að taka þátt í mannorðs­morðinu sem er að eiga sér stað og á sér stað í kringum þetta allt saman, bæði gagnvart creators og fleirum, þá skuluð þið prísa ykkur sæla að við gerum ekki slíkt hið sama því það væru ansi margir sem myndu missa vinnuna. Hátt­settir einstaklingar í alls konar stöðum og störfum. Blaðamenn, frétta­menn, þingmenn, alls konar. Þannig að já.“

Eftir mynd­bandið birti Anna Karen texta þar sem hún meðal annars hlær að umfjöllun Frétta­blaðsins um þessi orð hennar. Fyrirsögn FRétta­blaðsins var „Varar fólk við að fjalla frekar um mynd­bandið“ en Anna Karen skrifaði: „Æjji kommon @frettabladid. Er þetta fyrir­sögnin sem þið ætlið að nota *hlátur­kall*.Hversu stór hluti af ykkar starfi felst í því að túlka frásagnir viðmælenda ykkar þannig að fréttirnar komist sem best til skila?“

Beinir hún orðum sínum einnig að slökkviliðs­mönnum í „story“ er hún segir: „Án þess að gera lítið úr þessu sjúkrabíla­máli eða alvarleika þess ætla ég samt sem áður að benda á þá staðreynd að hefði ég setið þá fundi þar sem þetta var rætt hefðu fleiri misst starfið innan slökkviliðsins. #sorrynotsorry“

Hvar er línan?

Þá segist hún geta rætt „mistökin sem þetta klám­myndband var“ seinna en nú sé verið að tala um fjölmiðla­fólk. „Mannorðs­morðið sem ég nefndi áðan, vill ég góðfús­lega benda á að er ykkar gjörn­ingur – með ómálefnalegum og ófag­mannlegum vinnu­brögðum. Við getum rætt mistökin sem þetta klám­myndband var síðar. Núna erum við að tala um ykkur.“

Velti Anna Karen fyrir sér hvar línan væri er þegar kemur að persónu­legum upplýsingum sem fram koma í fréttum. „Hótun? Blaða­maður @dvfrettir gerði sér lítið fyrir í dag og skrifaði grein þar sem hún tók saman persónu­upplýsingar um báða aðila sem tengjast þessu sjúkrabíla­máli. Hún tók saman upplýsingar um fyrr um störf, upplýsingar af facebook og instagram profileum beggja aðila og setti saman undir svokallaða frétta­færslu. Það vitanlega varð til þess að internetfær almenningur fékk allt sem þurfti til að byrja að áreita. Þessvegna spyr ég, hvar er línan? Má hún setja okkur svona, leyfis­laust og á þennan líka einstak­lega taktlausa og ófag­mannlega hátt, í „sviðs­ljósið“? Má ég þá ekki allt eins standa upp og benda á hræsnarana í slökkviliðinu og á fleiri stofnunum sem sitja núna, vonandi með verðskuldaðann magaverk og skitu­sting?“

Sér eftir myndbandinu

Anna Karen segir að sér þykir leitt að hafa tekið upp mynd­bandið í sjúkra­bílnum og óskar þess að geta tekið það til baka: „Mér dettur ekki í hug að draga úr alvarleika málsins er varðar sjúkra­bílinn og vildi óska af öllu hjarta að ég gæti dregið það til baka. Ég tek ábyrgð á eigin gjörðum og þykir þetta leitt. Þetta hefði aldrei átt að eiga sér stað og ég vona að slökkviliðið endur­hugsi ákvörðun sína um að segja honum upp. En ég ætla ekki að sitja hérna þegjandi án þess að benda á hræsnina.“

Í viðbót við „story“ hjá henni sem bættist við í morgun segist hún aldrei hafa sagt að hún ætlaði að leka upplýsingum, bara að hún gæti það. „Ég sagði aldrei ætla að leka upplýsingum en ég sagðist geta gert það. Ég sagði líka að fjöl­miðlum væri ekki heimilt að taka þessi orð úr samhengi en þúveist.. áfram þið *hlátur­kall*“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Sveitarfélagið taldi eigendur kattarins ekki eiga aðild að máli um eftirlit með hundahaldinu og synjaði þeim um aðgang að gögnum.
Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis