Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Svört saga Sjálfstæðisflokksins: „Það var allt frelsið“

Guðjón Friðriksson sagn­fræðingur kallar eftir því á Facebook að 100 ára saga Sjálfstæðis­flokksins verði skrifuð, og það af einhverjum sem stendur fyrir utan flokkinn. Hann fer lauslega yfir sögu flokksins, en hún stangast bersýni­lega á við það sem flokks­menn halda fram í dag.

„Hvers vegna hefur aldrei verið skrifuð næstum 100 ára saga stærsta flokks þjóðarinnar, Sjálfstæðis­flokksins? Það væri verðugt verkefni fyrir vandaðan og helst ekki innvígðan fræðimann. Svokölluð sjálfstæðis­stefna hefur að mínum dómi nefnilega alls ekki verið sjálfum sér samkvæm eins og gjarnan er látið í veðri vaka af núverandi forystu­mönnum. Frelsi einstaklingsins hefur að vísu alltaf verið haldið á lofti en í reynd hefur Sjálfstæðis­flokkurinn löngum verið kerfis­flokkur og fyrir­greiðslu­flokkur. Á árum áður þurfti maður helst að vera flokks­maður til að fá fyrir­greiðslu. Það var allt frelsið,“ segir Guðjón.

Hann segir að flokkinn hafa lengst af verið ríkis­búskapar­flokkur. Báknið sem þeim er tíðrætt um, kom flest frá þeim sjálfum. „Á kreppu­árunum og stríðs­árunum  voru jafnaðar­menn og sósíal­istar í sókn. Til þess að missa ekki fylgi tók Sjálfstæðis­flokkurinn upp mörg hestu stefnumál þeirra, svo sem almanna­tryggingar og önnur velferðarmál. Í Reykjavík stofnuðu þeir meira að segja bæjar­útgerð og ráku stórt opinbert mjólkurbú á Korp­úlfstöðum. Sjálfstæðis­flokkurinn var í raun orðinn miðju­flokkur, ekki hægri flokkur og sann­kallaður ríkis­búskapar­flokkur. Aldrei var minnst á skatta­lækkanir. Þegar létt var nokkuð af ríkis­hömlum á viðreisnar­árunum var það ekki síst fyrir frumkvæði Alþýðu­flokksins (Gylfa Þ),“ segir Guðjón.

Svo hafi flokkurinn orðið að hálf­gerðum sértrúar­söfnuði. „Allt breyttist svo eftir 1980. Unga kynslóðin í flokknum dáðist að Margréti Thatcher í Bretlandi og Ronald Reagan í Banda­ríkjunum.  Skatta­lækkanir, einka­væðing og afnám reglu­verks urðu trúar­atriði. Það fór eins og það fór. Mikil skulda­söfnun og söfnun auðs á fárra hendur og loks hrun. Með Davíð Oddssyni varð stefna Thatchers og Reagans að trúar­atriði í Sjálfstæðis­flokknum og hefur eiginlega verið það síðan. Áður fyrr var flokkurinn frekar alþjóð­lega sinnaður á köflum en nú er einangrunar­hyggjan alls ráðandi. Eða hvað? Það þarf að skrifa sögu flokksins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning